Aglow-konur hittast í kvöld
LANDAKIRKJA
Aglowfundir eru haldnir í safnaðarheimili Landakirkju.

Aglow-samvera verður í Safnaðarheimili Landakirkju í kvöld, miðvikudaginn 7. október, kl. 19.30. Samveran hefst með hressingu og samfélagi, en síðan verður sungið, beðið saman og hlýtt á boðskap. Allar konur eru velkomnar, að því er segir í tilkynningu frá stjórn Aglow í Vestmannaeyjum.

Á fundinum munu konur sem sóttu Aglow-ráðstefnu í Skálholtsbúðum helgina 2.–4. október segja frá því sem helst talaði til þeirra þar. Í tilkynningunni er helginni lýst sem uppbyggilegri og bent á að Aglow-konur starfi víða um heim að því að boða sigur Drottins með bæn og verkum.

Á septemberfundinum kom Guðrún Erlingsóttir í heimsókn og kynnti nýju plötuna sína, Sólarlag. Segir stjórnin að ánægjulegt hafi verið að hlusta á Rúnu segja frá og syngja lögin sem hún hefur samið.

Fundir vetrarins

Aglow-fundir veturinn 2026–2027 verða 7. október, 4. nóvember og 2. desember, en þá verður jólafundur. Eftir áramót verða fundir 6. janúar, 3. febrúar, 3. mars, 7. apríl og 5. maí.

Nýjustu fréttir

Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum
Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.