Æfðu viðbrögð við eldsvoða í Kjarnanum
Íbúar og starfsfólk Kjarnans ásamt Friðriki Páli Arnfinnssyni slökkviliðsstjóra við brunaæfinguna. Mynd/Vestmannaeyjabær.

Brunaæfing fór fram föstudaginn 2. október í Kjarnanum, íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Vestmannaeyjum. Markmiðið var að æfa viðbrögð við mögulegum eldsvoða og tryggja að íbúar og starfsfólk þekki verklag og öruggar rýmingarleiðir. Þetta kemur fram í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar.

Áður en æfingin hófst fengu íbúar og starfsfólk fræðslu um eldvarnir og viðbrögð ef eldur kemur upp. Friðrik Páll Arnfinnsson slökkviliðsstjóri aðstoðaði við æfinguna og veitti ráð um viðbrögð og öryggi.

Samkvæmt frétt bæjarins gekk æfingin mjög vel og starfsfólk kom íbúum á örugga staði á örskömmum tíma. Hún gaf jafnframt tækifæri til að fara yfir verklag og aðbúnað og greina atriði sem huga þarf betur að til að tryggja öryggi og aðgengi allra við neyðaraðstæður.

Í fréttinni er bent á að brunaæfingar séu mikilvægur þáttur í öryggisstarfi og gefi bæði íbúum og starfsfólki tækifæri til að æfa viðbrögð við neyð.

Nýjustu fréttir

Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Blásið til sóknar í tónlistinni
Jón Þór vill yfirferð á verklagi eftir úrskurðina
Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst í nóvember
Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.