23% minni afli í júlí í ár
Kor Bryggja Tms
Landað í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Í júlí lönduðu íslensk skip rúmum 78,3 þúsund tonnum af afla sem er 23% minni afli en í júlí 2023. Mikill samdráttur var í veiðum á uppsjávarafla, að því er segir í fréttatilkynningu frá Hagstofu Íslands.

Heildarafli á tólf mánaða tímabilinu frá ágúst 2023 til júlí 2024 var tæplega 1,1 milljón tonn sem er 27% minna en aflinn á sama tólf mánaða tímabili ári fyrr. Helsta ástæðan fyrir þessum samdrætti er engin loðnuveiði.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.