46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
20250321 141838
Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Samkvæmt septembertalningu HMS eru 26 íbúðir í byggingu í Vestmannaeyjum og aðrar 20 fullbúnar en hafa ekki verið teknar í notkun. Nokkur sveitarfélög á Suðurlandi eru meðal þeirra sem mest byggja miðað við stærð íbúðastofnsins.

Alls eru 46 íbúðir á mismunandi stigum byggingarferlisins í Vestmannaeyjum samkvæmt nýjustu talningu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, HMS. Þar af eru 20 á framvindustigi 7, sem merkir að byggingu sé að mestu lokið samkvæmt hönnunargögnum en íbúðin hafi ekki verið tekin í notkun.

Hinar 26 íbúðirnar eru á mismunandi stigum framkvæmda. Ein er á framvindustigi 2, þar sem vinnu við undirstöður er lokið. Sextán eru á framvindustigi 3, þar sem botnplata er tilbúin og vinna við burðarvirki hafin. Átta eru á framvindustigi 4 og teljast fokheldar, en ein er á framvindustigi 5, þar sem frágangur er lengra kominn.

Ölfus með hæsta hlutfallið

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, SASS, fjalla um niðurstöðurnar á vef sínum og benda á umfang uppbyggingar á Suðurlandi miðað við stærð íbúðastofns sveitarfélaganna.

Ölfus er með hæsta hlutfall íbúða í byggingu á landsvísu, eða 15,2% miðað við fjölda fullbúinna íbúða sem fyrir eru. Meðal annarra sunnlenskra sveitarfélaga með hátt hlutfall eru Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hveragerðisbær, Grímsnes- og Grafningshreppur og Hrunamannahreppur.

Uppsöfnun fullbúinna íbúða kemur jafnframt fram í stærri sveitarfélögum landshlutans. Í Árborg eru 194 íbúðir fullbúnar en ónotaðar, í Ölfusi 117 og í Hveragerði 47, samkvæmt samantekt SASS.

Hægt hefur á uppbyggingu á landsvísu

Á landinu öllu voru 6.216 íbúðir í byggingu í september, að fullbúnum en ónotuðum íbúðum frátöldum. Það er 11% fækkun frá því í mars.

Til viðbótar voru 1.855 íbúðir fullbúnar en höfðu ekki verið teknar í notkun, eða um 85% fleiri en ári áður. Þá hófust framkvæmdir við 772 íbúðir á síðustu sex mánuðum. Nýjar framkvæmdir milli talninga hafa ekki verið færri frá því HMS hóf talningarnar árið 2021.

Nánari upplýsingar má finna í septembertalningu HMS 2026.

Nýjustu fréttir

Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.