ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri

Bergvin Haraldsson stýrði ÍBV í fyrsta sinn sem aðalþjálfari liðsins þegar Eyjamenn heimsóttu KA í 6. umferð Olís deildar karla á Akureyri í kvöld. Heimamenn í KA höfðu þar betur og unnu öruggan sex marka sigur, 31–25. Jafnræði var með liðunum framan af og var staðan 5–5 eftir tíu mínútna leik. KA menn höfðu þó […]
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn

Eyjamaðurinn Elmar Erlingsson átti frábæran leik fyrir Nordhorn-Lingen í 33-29 sigri á Ludwigshafen á útivelli í þýsku B-deildinni í handbolta í gærkvöldi. Elmar skoraði þrjú mörk í leiknum og lagði upp önnur tíu, en Nordhorn-Lingen sneri leiknum sér í hag í síðari hálfleik. Heimamenn í Ludwigshafen leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 18-14, en gestirnir […]
Frá borholusjó til flögusalts

Laxey og Saltey hafa undirritað samstarfssamning um nýtingu borholusjávar til saltframleiðslu í Vestmannaeyjum. Starfsemi Salteyjar verður til húsa í seiðastöð Laxeyjar, þar sem sjór sem fellur til við ferskvatnsframleiðslu verður nýttur til framleiðslu á flögusalti. Þetta kemur fram í frétt á vef Laxeyjar. Samstarfið tengir saman tvö fjölskyldurekin fyrirtæki í Vestmannaeyjum og miðar að því […]
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar

Samkvæmt septembertalningu HMS eru 26 íbúðir í byggingu í Vestmannaeyjum og aðrar 20 fullbúnar en hafa ekki verið teknar í notkun. Nokkur sveitarfélög á Suðurlandi eru meðal þeirra sem mest byggja miðað við stærð íbúðastofnsins. Alls eru 46 íbúðir á mismunandi stigum byggingarferlisins í Vestmannaeyjum samkvæmt nýjustu talningu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, HMS. Þar af […]
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu

Unnar Gísli Sigurmundsson, betur þekktur sem Júníus Meyvant, verður með tónleika í Alþýðuhúsinu á morgun, föstudaginn 2. október. Heimsklassa tónlistarfólk verður honum einnig til halds og trausts og mun sviðsuppsetningin undirstrika nándina og hlýjuna sem einkennir tónlist hans. Unnar byrjaði að spila á gítar á þrítugsaldri og fann sig fljótt í tónlistinni. Fyrsta lag hans, […]
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins

Karlalið ÍBV sækir KA heim í fimmtu umferð Olísdeildar karla í handbolta í kvöld. Leikurinn fer fram í KA-heimilinu á Akureyri og hefst klukkan 18:00. Þetta verður fyrsti leikur Eyjamanna eftir að Bergvin Haraldsson tók við sem aðalþjálfari liðsins. Erlingur Birgir Richardsson yfirgaf þjálfarateymið á dögunum og tók við þýska liðinu GWD Minden. Sigurður Bragason […]
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina

Loppumarkaður verður haldinn á Heiðarvegi 9b um helgina, dagna 3. – 4. október. Opið verður frá 11-17 báða dagana. Á markaðnum verður ýmis konar notaður fatnaður fyrir börn og fullorðna til sölu á góðu verði. Lögð verður sérstök áhersla á almennan útifatnað, vetrarfatnað, íþróttavörur, æfingafatnað, alls kyns skó/æfingaskó/takkskó, töskur/bakpoka ofl. Frekari upplýsingar má finna hér […]
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag

Rauða krossdeildin í Vestmannaeyjum tekur þátt í Skjóli 2026, æfingu Rauða krossins í opnun fjöldahjálparstöðva, laugardaginn 3. október. Af því tilefni verður fjöldahjálparstöð opnuð í Arnardrangi, húsnæði deildarinnar við Hilmisgötu, frá klukkan 11:00 til 13:00. Í tilkynningu frá deildinni segir að öllum sé boðið að koma og kynna sér hvernig fjöldahjálparstöð er virkjuð þegar neyðarástand, […]