Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Arnardrangur. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Rauða krossdeildin í Vestmannaeyjum tekur þátt í Skjóli 2026, æfingu Rauða krossins í opnun fjöldahjálparstöðva, laugardaginn 3. október. Af því tilefni verður fjöldahjálparstöð opnuð í Arnardrangi, húsnæði deildarinnar við Hilmisgötu, frá klukkan 11:00 til 13:00.

Í tilkynningu frá deildinni segir að öllum sé boðið að koma og kynna sér hvernig fjöldahjálparstöð er virkjuð þegar neyðarástand, vá eða stórslys verða í heimabyggð. Yfirskrift æfingarinnar er „Fjöldahjálp í rafmagnsleysi“.

Rauða krossdeildin hvetur íbúa til að líta við og kynna sér starfið og vonast til að sjá sem flesta í Arnardrangi á laugardag.

Nýjustu fréttir

Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur
Sundlaugin lokuð vegna viðhalds – útisvæðið áfram opið
Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.