Laxey og Saltey hafa undirritað samstarfssamning um nýtingu borholusjávar til saltframleiðslu í Vestmannaeyjum. Starfsemi Salteyjar verður til húsa í seiðastöð Laxeyjar, þar sem sjór sem fellur til við ferskvatnsframleiðslu verður nýttur til framleiðslu á flögusalti.
Þetta kemur fram í frétt á vef Laxeyjar. Samstarfið tengir saman tvö fjölskyldurekin fyrirtæki í Vestmannaeyjum og miðar að því að nýta betur hráefni sem verður til í starfsemi seiðastöðvarinnar.
Við framleiðslu ferskvatns hjá Laxey er borholusjór leiddur í gegnum svokallað RO-kerfi sem skilur ferskvatnið frá. Það er nýtt við seiðaframleiðsluna en sjórinn sem eftir verður fer áfram til Salteyjar. Í fréttinni kemur fram að sjórinn hafi hingað til að mestu verið vannýtt hliðarafurð ferlisins.
„Við erum mjög ánægð með að hefja þetta samstarf við Saltey. Með því finnum við leið til að nýta betur þær afurðir sem verða til í okkar starfsemi á sama tíma og við styðjum við verðmætasköpun og framleiðslu í heimabyggð,“ segir Daði Pálsson, framkvæmdastjóri Laxeyjar, í fréttinni.
Fram kemur að aukin eftirspurn eftir vörum Salteyjar hafi skapað þörf fyrir stækkun. Samningurinn tryggir fyrirtækinu bæði aðgang að hráefni og húsnæði fyrir vinnslu og fullvinnslu saltsins í seiðastöð Laxeyjar.
„Þetta samstarf gerir okkur kleift að mæta aukinni eftirspurn eftir vörum okkar með sjálfbærum hætti og byggir á hráefni sem á uppruna sinn í hreinum borholusjó frá Vestmannaeyjum. Við sjáum mikil tækifæri í samstarfinu og hlökkum til að vinna með Laxey á komandi árum,“ segir Leifur Jóhannesson, einn eigenda Salteyjar.
Með samstarfinu verður sami borholusjórinn þannig nýttur til tveggja ólíkra framleiðsluþátta: ferskvatns fyrir seiðaeldi Laxeyjar og matarsalts hjá Saltey.