Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
2. Bundsliga: HSG Nordhorn-Lingen - TV Großwallstadt 25:25
Mynd/Nordhorrn-Lingen

Eyjamaðurinn Elmar Erlingsson átti frábæran leik fyrir Nordhorn-Lingen í 33-29 sigri á Ludwigshafen á útivelli í þýsku B-deildinni í handbolta í gærkvöldi.

Elmar skoraði þrjú mörk í leiknum og lagði upp önnur tíu, en Nordhorn-Lingen sneri leiknum sér í hag í síðari hálfleik.

Heimamenn í Ludwigshafen leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 18-14, en gestirnir komu sterkir til leiks eftir hlé og unnu að lokum öruggan 33-29 sigur.

Nordhorn-Lingen situr í 6. sæti þýsku B-deildarinnar með sjö stig, en Ludwigshafen er í 15. sæti með tvö stig. Vegna fjárhagsvandræða Nordhorn-Lingen verða sex stig dregin af liðinu í lok tímabilsins.

Nýjustu fréttir

Það á að hrósa því sem vel er gert
Hádegismatur með fjölskyldunni forréttindi 
Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Líkamsrækt við Hástein skrefi nær – tveir sátu hjá
Spegilmyndir í morgunblíðunni
Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.