ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Bergvin Haraldsson stýrði ÍBV í fyrsta sinn
Úr leik ÍBV og HK í Eyjum. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Bergvin Haraldsson stýrði ÍBV í fyrsta sinn sem aðalþjálfari liðsins þegar Eyjamenn heimsóttu KA í 6. umferð Olís deildar karla á Akureyri í kvöld. Heimamenn í KA höfðu þar betur og unnu öruggan sex marka sigur, 31–25.

Jafnræði var með liðunum framan af og var staðan 5–5 eftir tíu mínútna leik. KA menn höfðu þó ávallt frumkvæðið og náðu smám saman yfirhöndinni. Þegar fimm mínútur voru til hálfleiks höfðu þeir náð þriggja marka forskoti og leiddu 13–11 þegar gengið var til búningsklefa.

Í síðari hálfleik juku KA menn forskot sitt fljótt og voru komnir með fimm marka forystu, 20–15, þegar tíu mínútur voru liðnar. Heimamenn héldu áfram að hafa yfirhöndina og náðu mest átta marka forskoti, 24–16, þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum.

Eyjamenn minnkuðu muninn niður í fjögur mörk, 26–22, þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka. Nær komust þeir ekki og KA menn héldu forystunni út leikinn og fögnuðu að lokum sex marka sigri, 31–25.

Kristófer Ísak Bárðarson var markahæstur í liði ÍBV með sex mörk. Dagur Árni Heimisson hjá KA var markahæstur í leiknum með 11 mörk. Petar Jokanovic varði fimm skot í marki ÍBV en Morgan Goði Garner fjögur.

ÍBV situr í 6. sæti deildarinnar með fjögur stig eftir fimm umferðir. KA er í 2. sæti með átta stig, tveimur stigum á eftir toppliði Hauka, sem unnu stórsigur á Víkingi í kvöld, 38-29.

Mörk ÍBV: Kristófer Ísak Bárðarson 6, Gary Emanuel Philips 5, Daníel Þór Ingason 3, Sveinn José Rivera 3, Atli Steinn Arnarson 2, Magnús Dagur Jónatansson 2, Anton Frans Sigurðsson 1, Dagur Arnarsson 1, Haukur Leó Magnússon 1, Sigtryggur Daði Rúnarsson 1.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.