Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Júníus Meyvant stígur á svið í Alþýðuhúsinu

Unnar Gísli Sigurmundsson, betur þekktur sem Júníus Meyvant, verður með tónleika í Alþýðuhúsinu á morgun, föstudaginn 2. október.

Heimsklassa tónlistarfólk verður honum einnig til halds og trausts og mun sviðsuppsetningin undirstrika nándina og hlýjuna sem einkennir tónlist hans.

Unnar byrjaði að spila á gítar á þrítugsaldri og fann sig fljótt í tónlistinni. Fyrsta lag hans, Color Decay, kom út árið 2014 og vakti mikla athygli bæði hér heima og utan landsteinanna og var meðal annars valið lag dagsins hjá útvarpsstöðinni KEXP í Seattle.

Síðan þá hefur hann sent frá sér þrjár breiðskífur og tvær stuttskífur, auk laga á borð við Signals, Gold Laces og Ain’t Gonna Let You Drown.

Eyjafólki gefst nú tækifæri á að sjá Júníus á sviði og njóta tónlistar hans hér í Eyjum.

Miðasala fer fram á tix.is.

Nýjustu fréttir

Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.