ÍBV-íþróttafélag hefur tekið saman ferðakostnað nýliðins árs. Í frétt á vef ÍBV kemur fram að heildarkostnaðurinn nemi 56.500.000 krónum. Kostnaðurinn er þó eingöngu vegna ferða í tengslum við Íslandsmót en ekki vegna æfingaleikja eða leikja í bikar- eða deildarkeppnum.
Fjármagn úr svokölluðum ferðajöfnunarsjóði greiðir hluta kostnaðarins en í ár má búast við að ÍBV fái um 6 milljónir króna þaðan. Sjóðnum er ætlað að draga úr miklum ferðakostnaði félaga á landsbyggðinni.
ÍBV þakkar einstaklingum, fyrirtækjum og Vestmannaeyjabæ fyrir hjálpina við að standa straum af miklum ferðakostnaði félagsins.