71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa jákvæð áhrif
Ferðamenn í afgreiðslu Herjólfs. Eyjafréttir/TMS

Alls telja 71% landsmanna að ferðaþjónusta hafi haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag en tæp 12% telja áhrifin neikvæð. Þetta kemur fram í könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir Samtök ferðaþjónustunnar, SAF, fyrr á árinu.

Í fréttatilkynningu SAF segir að viðhorfið sé mjög jákvætt í öllum landshlutum, þótt vægi og umfang ferðaþjónustunnar sé mismunandi eftir svæðum.

Hlutfall þeirra sem meta áhrif ferðaþjónustunnar jákvæð er hæst á Norðurlandi, 76,9%. Þá er hlutfallið 73,2% á Austurlandi, 72,8% á Vesturlandi og Vestfjörðum og 71,4% á Suðurlandi og Reykjanesi. Í Reykjavík er hlutfallið 70% og 68,8% í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur.

SAF bendir á að ferðaþjónustan hafi á undanförnum árum orðið stærsta útflutningsgrein landsins og verið mikilvæg fyrir atvinnu- og byggðaþróun víða um land.

„Það er mjög ánægjulegt að sjá hversu afgerandi meirihluti landsmanna telur ferðaþjónustuna hafa haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Sérstaklega er athyglisvert að sjá svo jákvætt viðhorf ríkjandi um allt land,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF.

Hann segir niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að stjórnvöld og atvinnugreinin taki höndum saman um aðgerðir sem geti stækkað ferðaþjónustukökuna og skapað aukin verðmæti og atvinnutækifæri fyrir samfélög um allt land.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu dagana 7. til 12. maí 2026.

Nýjustu fréttir

Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.