Emil Gautason í lokahóp u-17 fyrir undankeppni EM

Emil Gautason, leikmaður ÍBV í fótbolta, hefur verið valinn af Ómari Inga Guðmundssyni, landsliðsþjálfara U17 karla, í lokahóp Íslands sem tekur þátt í fyrri umferð undankeppni Evrópumótsins 2027. Undankeppnin fer fram í Bosníu og Hersegóvínu dagana 21.–30. september. Ísland er í riðli með Bosníu og Hersegóvínu, Gíbraltar og Grikklandi. Fyrsti leikur Íslands verður gegn Gíbraltar […]
Skoðaði bergið og mögulega legu Eyjaganga

Eivind Grøv, tæknilegur ráðgjafi Eyjaganga og einn reyndasti sérfræðingur heims á sviði neðansjávarganga, heimsótti Vestmannaeyjar í síðustu viku. Þar kynnti hann sér aðstæður á vettvangi og fór yfir gögn úr rannsóknum vegna mögulegra jarðganga milli lands og Eyja. Grøv skoðaði meðal annars mögulega legu ganganna, svæðið umhverfis rannsóknarholu EG-01 á Heimaey og staðhætti með tilliti […]
Hertar kröfur um gagnsæi sveitarfélaga – geta sætt háum sektum

Nýtt frumvarp til sveitarstjórnarlaga felur í sér auknar kröfur um gagnsæi í stjórnsýslu sveitarfélaga og mun víðtækari upplýsingaskyldu gagnvart íbúum. Þá er lagt til að ráðherra geti lagt stjórnvaldssektir á sveitarfélög vegna mjög alvarlegrar eða ítrekaðrar vanrækslu. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær. Um er að ræða ný heildarlög um sveitarstjórnir […]
Leik Fram og ÍBV frestað vegna ófærðar

Leik Fram og ÍBV í Olísdeild karla í handbolta, sem fara átti fram í Lambhagahöllinni klukkan 18:00 í dag, hefur verið frestað þar sem ófært er frá Vestmannaeyjum. Nýr leiktími hefur þegar verið ákveðinn. Liðin mætast í Lambhagahöllinni á morgun, fimmtudaginn 17. september, klukkan 18:00.* Aðrir leikir þriðju umferðar Olísdeildar karla fara fram í kvöld […]
Milena lék með u-17 í Portúgal

Milena Mihaela Patru, leikmaður ÍBV, lék með íslenska u-17 ára landsliðinu í fótbolta á æfingamóti í Portúgal á dögunum. Milena kom við sögu í öllum þremur leikjum Íslands á mótinu gegn Wales, Portúgal og Danmörku. Í fyrsta leiknum, gegn Wales, kom hún inn á undir lok leiks og lék síðustu 20 mínúturnar í 2–2 jafntefli. […]
Treg veiði hjá Bergey

Bergey VE landaði nánast fullfermi í Neskaupstað í gærmorgun. Aflinn var að langmestu leyti þorskur en einnig var dálítið af ufsa, ýsu og fleiri tegundum. „Sannast sagna er ekki mikið fjör í veiðinni um þessar mundir. Hjá togurum er víða afar rólegt en það hlýtur að breytast þegar haustar fyrir alvöru,“ segir Ragnar Waage Pálmason […]
71% landsmanna telja ferðaþjónustu hafa jákvæð áhrif

Alls telja 71% landsmanna að ferðaþjónusta hafi haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag en tæp 12% telja áhrifin neikvæð. Þetta kemur fram í könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir Samtök ferðaþjónustunnar, SAF, fyrr á árinu. Í fréttatilkynningu SAF segir að viðhorfið sé mjög jákvætt í öllum landshlutum, þótt vægi og umfang ferðaþjónustunnar sé mismunandi eftir svæðum. […]
Hefur myndað mannlífið í Eyjum í áratugi

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, hefur í áratugi myndað fjölbreytt mannlíf og viðburði í Vestmannaeyjum. Áhugi hans á ljósmyndun kviknaði strax í barnæsku og síðan þá hefur myndavélin sjaldan verið langt undan. Í gegnum starf sitt hefur hann orðið vitni að ótal viðburðum og augnablikum í samfélaginu, bæði stórum og smáum. Óskar Pétur er Eyjamaður […]
ÍBV sækir topplið Fram heim í kvöld

Karlalið ÍBV í handbolta mætir Fram á útivelli í Olísdeildinni í kvöld. Flautað verður til leiks í Lambhagahöllinni klukkan 18:00. Fram hefur farið vel af stað og unnið báða leiki sína. Liðið vann Þór 38:34 í fyrstu umferð og fylgdi því eftir með 47:40 útisigri á Val. Fram er í öðru sæti deildarinnar með fjögur […]
„Rauðir hundar“ hljóma á ný eftir nær 90 ár

Alþýðutónlistarhópurinn Vinir og vandamenn heldur síðbúna útgáfutónleika í Eldheimum laugardaginn 19. september frá klukkan 17.00 til 19.00. Þar verða flutt sjaldheyrð og jafnvel óútgefin Eyjalög ásamt þekktari perlum sem tónleikagestir fá að syngja með. Tónleikarnir áttu upphaflega að fara fram í maí en þá settu samgöngur strik í reikninginn. Nú er hópurinn hins vegar á […]