Milena lék með u-17 í Portúgal
Milena Mihaela Patru. Mynd/ÍBV

Milena Mihaela Patru, leikmaður ÍBV, lék með íslenska u-17 ára landsliðinu í fótbolta á æfingamóti í Portúgal á dögunum. Milena kom við sögu í öllum þremur leikjum Íslands á mótinu gegn Wales, Portúgal og Danmörku. 

Í fyrsta leiknum, gegn Wales, kom hún inn á undir lok leiks og lék síðustu 20 mínúturnar í 2–2 jafntefli. Í næsta leik mætti Ísland heimakonum í Portúgal. Milena kom inn á í hálfleik í þeim leik, sem Portúgal vann naumlega, 1–0.

Milena var síðan í byrjunarliði Íslands í lokaleiknum gegn Danmörku. Þar lét hún verulega til sín taka þegar hún stakk varnarmann Dana af og náði boltanum á undan markverðinum. Markvörðurinn felldi Milenu og íslenska liðið fékk vítaspyrnu í kjölfarið. Leiknum lauk með 1-2 sigri Danmerkur.

Hefur þegar skoraði 12 mörk í meistaraflokki

Milena, sem er aðeins 15 ára gömul, hefur farið vel af stað með ÍBV á þessu tímabili. Hún hefur skorað mikið fyrir 3. flokk félagsins og hefur jafnframt fengið tækifæri með meistaraflokki.

Á dögunum skoraði hún sitt fyrsta mark í Bestu deild kvenna þegar ÍBV mætti Þrótti Reykjavík. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Milena nú skorað alls 12 mörk fyrir meistaraflokk ÍBV.

 

Nýjustu fréttir

Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.