Eivind Grøv, tæknilegur ráðgjafi Eyjaganga og einn reyndasti sérfræðingur heims á sviði neðansjávarganga, heimsótti Vestmannaeyjar í síðustu viku. Þar kynnti hann sér aðstæður á vettvangi og fór yfir gögn úr rannsóknum vegna mögulegra jarðganga milli lands og Eyja.
Grøv skoðaði meðal annars mögulega legu ganganna, svæðið umhverfis rannsóknarholu EG-01 á Heimaey og staðhætti með tilliti til framkvæmda. Þá fór hann ásamt fulltrúum Eyjaganga og ráðgjöfum verkefnisins yfir kjarnasýni úr rannsóknarholunum tveimur, EG-01 á Heimaey og EG-02 á Landeyjasandi.
Kjarnasýnin voru tekin við vettvangsrannsóknir á árinu. Þau mynda, ásamt hafsbotnsmælingum, grunn að jarðfræðilegri greiningu verkefnisins og eru meðal mikilvægustu gagna við mat á fýsileika og kostnaði ganganna.
„Það skiptir miklu máli fyrir ráðgjafa að standa sjálfur á staðnum og sjá bergið með eigin augum, ekki aðeins á myndum og í skýrslum. Gagnaöflun Eyjaganga hefur verið vönduð og verkefnið er á réttri leið í undirbúningi sínum,“ segir Grøv.
Grøv hefur yfir fjögurra áratuga reynslu af jarðgangagerð og bergtækni. Hann hefur meðal annars starfað sem aðalvísindamaður hjá norsku rannsóknastofnuninni SINTEF og prófessor við NTNU í Þrándheimi. Þá hefur hann gegnt formennsku í norska jarðgangafélaginu og verið varaforseti Alþjóðasamtaka um jarðgangagerð, ITA-AITES.
Hann kom að undirbúningi Hvalfjarðarganga á tíunda áratugnum og hefur verið ráðgjafi við öll neðansjávargöng í Færeyjum. Grøv gekk til liðs við Eyjagöng í maí síðastliðnum.
Vettvangsrannsóknum Eyjaganga lauk í ágúst. Nú stendur yfir úrvinnsla gagna sem verða lögð til grundvallar fýsileika- og kostnaðarmati verkefnisins.
Fréttin er unnin upp úr umfjöllun sem birtist á vef Eyjaganga í dag.
