Treg veiði hjá Bergey
Bergey Ve Ur Hofn
Bergey VE á leið á miðin. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bergey VE landaði nánast fullfermi í Neskaupstað í gærmorgun. Aflinn var að langmestu leyti þorskur en einnig var dálítið af ufsa, ýsu og fleiri tegundum.

„Sannast sagna er ekki mikið fjör í veiðinni um þessar mundir. Hjá togurum er víða afar rólegt en það hlýtur að breytast þegar haustar fyrir alvöru,“ segir Ragnar Waage Pálmason skipstjóri í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Veitt var á mörgum miðum í túrnum. Bergey hóf veiðar í Reynisdýpi, hélt þaðan í Meðallandsbugt, á Ingólfshöfða og í Breiðamerkurdýpi. Að sögn Ragnars var veiðin misjöfn á þessum slóðum og yfirleitt heldur treg.

Áhöfnin reyndi því aftur fyrir sér á Ingólfshöfða áður en stefnan var tekin austur fyrir land. Þar var fyrst veitt við Hvalbak en túrnum lauk á miðunum Utanfótar og við Örvæntingu.

Bergey hélt aftur til veiða skömmu eftir að löndun lauk. Birtingur NK landaði einnig í Neskaupstað á sunnudag. Aflinn var um 90 tonn og hélt skipið aftur til veiða í gær.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.