Emil Gautason í lokahóp u-17 fyrir undankeppni EM
Mynd/ÍBV

Emil Gautason, leikmaður ÍBV í fótbolta, hefur verið valinn af Ómari Inga Guðmundssyni, landsliðsþjálfara U17 karla, í lokahóp Íslands sem tekur þátt í fyrri umferð undankeppni Evrópumótsins 2027. Undankeppnin fer fram í Bosníu og Hersegóvínu dagana 21.–30. september.

Ísland er í riðli með Bosníu og Hersegóvínu, Gíbraltar og Grikklandi. Fyrsti leikur Íslands verður gegn Gíbraltar 23. september. Þeir mæta svo heimamönnum 26. september og leika gegn Grikklandi í lokaleik sínum 29. september.

Liðin sem enda í tveimur efstu sætum riðilsins verða í A-deild í seinni umferð undankeppninnar og leika þar um sjö laus sæti í lokakeppninni, sem fer fram í Lettlandi dagana 24. maí–6. júní.

Liðin í tveimur neðstu sætum riðilsins munu leika í B-deild undankeppninnar og munu ekki eiga möguleika á að komast í lokakeppnina.

 

Nýjustu fréttir

Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.