900 keppendur á leiðinni til Eyja

Á morgun streyma ungar knattspyrnukonur til Vestmannaeyja til að taka þátt í 30. TM Mótinu í Eyjum. Mótið í ár er það stærsta síðan mótinu var breytt í 5. flokks mót árið 2005, með 96 lið. Von er á 900 keppendum, 200 þjálfurum/farastjórum ásamt foreldrum og er því hægt að gera ráð fyrir því að hátt í 2000 manns heimsæki eyjuna í vikunni.

Í tilefni þess að þetta er 30. mótið sem við höldum þá verður boðið uppá afmælisköku í Týsheimilinu fimmtudaginn 14. júní kl. 13:00-16:00.

Í gær var opnuð í Einarsstofu sýning um sögu fótboltamótanna og í dag fór í loftið hjá ÍBV hlaðvarpinu þáttur tileinkaður TM Mótinu, þetta er eitthvað sem enginn ÍBV-ari ætti að láta framhjá sér fara.

Við hvetjum Eyjamenn til að mæta á völlinn og fylgjast með ungum knattspyrnukonum.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.