Óðinn til sýnis til klukkan tvö í dag
4. júlí, 2023

Varðskipið Óðinn kom til Vestmannaeyja í gærmorgun í tilefni þess að 50 ár séu liðin frá lokum eldgossins á Heimaey. Lagt var af stað sunnudagskvöld frá Reykjavíkurhöfn og í fylgd áhafnar var Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.

Skipið er áfram til sýningar í dag á Nausthamarsbryggju frá kl. 10:00 til 14:00.

Fullkomnasta björgunarskip á Norður-Atlantshafi

Óðinn var smíðaður í Álaborg í Danmörku árið 1959 og kom til landsins í byrjun árs 1960. Á þessum tíma var skipið talið vera fullkomnasta björgunarskip á Norður-Atlantshafi. Skipið er það þriðja Landhelgisgæslu Íslands til þess að bera nafnið og var starfrækt til ársins 2006 þegar því var endanlega lagt.

Óðinn er í dag safnskip í eigu Hollvinasamtaka varðskipsins Óðins. Samtökin voru stofnuð árið 2006 með það að markmiði að varðveita sögu skipsins og sjá til þess að það yrði ekki selt í brotajárn. Þau fengu Óðinn afhentan í lok maí 2008.

„Óðinn er tengdur Sjóminjasafni Reykjavíkur en þó er gert ráð fyrir því í góðu samstarfi við safnið að hann fari eina ferð yfir sumartímann á íslenskar hafnir. Við fórum til Grindavíkur í fyrra og árið áður þá var það Akranes” segir Guðmundur Hallvarðsson, formaður Hollvinasamtaka v/s Óðins og fyrrum skipverji á Óðni í samtali við Eyjafréttir.

„Það er leitt til þess að vita að það eru mörg og góð skip sem hafa farið forgörðum og menn hafa ekki haft nokkurn áhuga á því að geyma þau. Mönnum finnst allt í lagi að varðveita hús, en gömul skip eiga sér oft mikla sögu eins og Óðinn og þess vegna fannst okkur sjálfsagt og eðlilegt að hann væri geymdur og varðveittur” segir Guðmundur.

Gosið eins og rautt leikhústjald

„Það kom eiginlega aldrei neitt annað til greina og ég var ekkert í vandræðum með að velja mér lífsstarf. Það hlaut að vera eitthvað vélavesen” segir Ingólfur Kristmundsson, yfirvélstjóri skipsins.

„Ég var einmitt á Óðni þann örlagaríka dag 23. janúar 1973. Við vorum á siglingu vestur um land og vorum komin langleiðina að Látrabjargi þegar það kom upp úr kafinu að það væri byrjað gos í Vestmannaeyjum” segir Ingólfur en hann kom á vakt klukkan fjögur um nóttina og skildi ekkert í því af hverju skipið sneri öfugt og væri á suðurleið en ekki vesturleið.

„Við vorum komnir til Vestmannaeyja hálf eitt um daginn og ég gleymi aldrei þeirri sýn sem blasti við manni þegar við sigldum fyrir norðan Eiðið og sáum yfir bæinn. Það var bara eldtjald frá Helgafelli og alveg niður að höfn, fannst manni allavega. Í mínum huga kom strax í hug svona rautt tjald eins og í leikhúsi.”

Óðinn sannaði gildi sitt

Óðinn tók drjúgan þátt í flutningum milli lands og eyja á meðan á gosinu stóð. Á fyrstu sjö dögunum flutti Óðinn 700 manns.

„Við vorum að flytja á milli björgunarfólk sem var að bjarga því sem bjarga var hægt. Negla fyrir glugga, þurrka ösku af þökum og þess háttar. Við vorum oft með hátt í 200 manns um borð á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja og alls konar byggingarefni eins og bárujárn og nagla. Við vorum með skipun frá almannavarnarnefnd að gæslan yrði að vera með skip sem næst Eyjum á meðan ástandið væri þannig að ekki var vitað hvort það myndi gjósa meira. Við þurftum að geta flutt 150 manns án nokkurar tafar.”

Óðinn tók þátt í öllum þremur þorskastríðum Íslendinga og Breta. Hann sannaði sitt gildi á sinni lífstíð og bjargaði ótrúlegum fjölda fólks frá drukknun og voða. „Hann dró held ég 200 skip til lands þessi tæp 50 ár og dró marga báta á flot eftir strand, meðal annars marga Vestmannaeyjabáta” segir Ingólfur.

Unnið að viðhaldi skipsins

„Það kom upp hugmynd í kringum 2020 þegar skipið varð 60 ára að það væri nú gaman að sigla því og þá kom upp að það væri hægt að skrá skipið sem safnskip og það fengi því aðra meðhöndlun í skoðun heldur en venjuleg skip í notkun. Við hentum okkur þá bara í það að gera vélarnar klárar og það kom í ljós að það væri ekkert stórvægilegt að þeim. Enda var Óðni ekki lagt vegna þess að vélararnar væru eitthvað bilaðar heldur var honum lagt því það var ekki talið borga sig að gera skipið út áfram því það var orðið svo gamalt” segir Ingólfur.

„Síðan er þetta líka félagslegt að koma svona saman. Til dæmis þá erum við þrír vélstjóranna skólabræður úr Vélskólanum. Þetta eru allt miklir snillingar og það er gaman að láta eitthvað gott af sér leiða” segir Ingólfur en það eru iðulega sjö til átta vélstjórar sem koma saman einu sinni í viku til þess að halda skipinu við.

 

Siglt inn í gærmorgun.
Hleypt af þremur heiðursskotum innan við garða.
Egill Þórðarson, loftskeytamaður og einn liðsmanna Hollvinasamtaka Óðins. Hér fer hann með morskóða sem var notaður í eldgosinu.
Kortaherbergið.
Vilbergur Magni, skipstjóri á Óðni. Hann var skipherra á Óðni þegar þeir ásamt varðskipinu Ægi björguðu flotkví Orms og Víglundar árið 1998.
Ingólfur í vélarrúminu.

 

 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.