Bronsbál og svartir svanir í Eldheimum
Ljósmynd: Bjarni Þór Georgsson.
Ljósmynd: Bjarni Þór Georgsson.

„Fyrir okkur er þetta ótrúlegt svæði að koma og vera og vinna, því hér erum við í svo miklum friði. Við erum bara í stúdíóinu og svo er allt innan seilingar í bænum” segir listamaðurinn Jón Óskar um Vestmannaeyjar í samtali við Eyjafréttir.

Hjónin Jón Óskar og Hulda Hákon hafa verið með listasýningu í Eldheimum í vikunni í tilefni að 50 ár séu liðin frá goslokum. Sýningin er opin til klukkan fimm í dag.

„Þetta er svona allavegana hjá okkur. Til dæmis þá sýnir hún Hulda bronsskúlptúra sem mynda nokkurs konar bál. Strangt til tekið þá hefur það ekkert um eyjagosið að gera eða þannig. Hulda hefur gert stór útiverk bæði í Noregi og Finnlandi sem samanstanda af svona eldum. Þetta er kannski meira eins og varðeldar, áramótabál eða því líkt. Það er ekkert sjálfsat að móta eld því hann er svo lifandi og kvikur” segir Jón en verkið samanstendur af 27 logum sem er raðað hlið við hlið.

Hundurinn með sitt verk

„Á sýningunni er líka verk eftir Heiðu Berlínu sem er tíkin okkar en hún dó fyrir nokkrum dögum. Hún var búin að fara um alla eyjun og það sem er skrýtið er að alltaf þegar við fórum upp á Nýja hraunið þá var hún alveg óð í að grafa holur. Ég veit ekki hvort það hafi verið út af hitanum í jörðinni eða hvort hún heyrði hljóð eða eitthvað” segir Jón sem fyrir nokkrum árum tók afsteypur af holunum og bjó til verk úr þeim. „Út úr því komu mjög fallegir baukar og maður sér alveg klórförin eftir hana. Þetta eru svona eins og lítil fjöll og við ákváðum að sýna eitt þeirra á sýningunni.”

„Síðan þegar það kemur að mér þá er ég sjö málverk. Tvö þeirra eru frekar abstrakt en síðan eru hin fimm um svarta svaninn. Svarti svanurinn er svona myndlíking sem lýsir atburðum sem koma á óvart. Eitthvað sem þú átt ekki von, hefur mikil áhrif eða er óviðeigandi. Það er engin stór yfirlýsing í þessu hjá mér og ég er meira svona að skemmta mér við myndirnar” segir Jón.

Þúsund kall

„Ég elska alla Eyjamenn og þeir hafa reynst mér alveg ótrúlega vel. Bara sem dæmi þá þurftum við að flytja svaka mikinn gám fullan af drasli þegar við keyptum hús hérna. Þá kom hérna maður á einhverjum átján hjóla trukk og hjálpaði okkur með flutningana sem tóku dágóðan tíma. Ég veit að svona stórir trukkar kosta heilmikið á tímann þegar þú leigir þá en þegar ég spurði hann hvað ég skuldaði honum þá spurði hann mig hvort ég væri ekki sáttur við þúsund kall. Mér fannst þetta svo flott móttaka og ég hef fengið þetta oft í Eyjum sem er bara alveg frábært.”

Sýningin opnaði í vikunni við góðar undirtektir.
Listahjónin þau Hulda Hákon og Jón Óskar.
Jón Óskar, Hulda og hundurinn Heiða Berlín. Ljósmynd: Bjarni Þór Georgsson.

Nýjustu fréttir

Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Appelsínugular viðvaranir gefnar út
Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor
Díana Dögg og Andrea deildarmeistarar í Þýskalandi
Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir
Viðvörun fyrir allt landið á annan í páskum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.