Elsta kvenfélag landsbyggðarinnar er á Eyrarbakka og afmælisfagnaður á morgun 24. apríl
Kvenfélagið á Eyrarbakka fagnar 120 ára afmæli sínu á morgun sumardaginn fyrsta en félagið var stofnað hinn 25. apríl 1888 af 16 konum, að tilstuðlan stúkunnar Eyrarrósarinnar.
Félagið er elsta starfandi kvenfélagið á landsbyggðinni.