Hin bráðefnilega knattspyrnukona í ÍBV, Þórhildur Ólafsdóttir hefur verið lánuð til enska 1. deildarliðsins Crystal Palace fram að áramótum. Þórhildur mun leika með liðinu fram að jólum en snúa þá aftur til liðs við ÍBV. Frá þessu er greint á heimasíðu ÍBV en þar segir að umgjörð í kringum C. Palace liðið sé með því besta sem gerist á Englandi. Þá hefur forráðamönnum kvennaknattspyrnunnar í Eyjum verið boðið að koma til London að kynna sér aðstæður með samvinnu liðanna í huga.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst