Ég undirritaður, Sigmar Jónsson, harma þau ummæli sem ég lét falla í viðtali við fréttamann Kastljós og birt voru í þættinum 17.apr sl. Hið rétta er að í þeim tilfellum þar sem aðstæður í Landeyjahöfn eru erfiðar siglir Herjólfur ekki til hafnarinnar. Ég hef aldrei orðið vitni að því að skipstjórar Herjólfs hafi vísvitandi tekið óþarfa áhættu og þannig stefnt fólki eða skipi í hættu.