Karlalið ÍBV í knattspyrnu leikur í dag gegn Breiðabliki á Hásteinsvelli. Leikur liðanna hefst klukkan 17:00 en bæði lið eru með þrjú stig eftir fyrstu umferð Íslandsmótsins. Eyjamenn lögðu ÍA 1:0 í fyrsta leiknum en á sama tíma lagði Breiðablik Þór Akureyri 4:1. Það mætti því reikna með því að það reyni meira á vörn ÍBV í leiknum í dag, en í leiknum gegn ÍA. Eins og fram kemur hér Eyjafréttum, þá ætla stuðningsmenn ÍBV að hittast á 900 grillhús og hita upp fyrir leikinn.