Leik ÍBV og Fylkis, sem átti að fara fram sunnudaginn 9. júní, hefur verið flýtt um viku. Er það gert vegna landsliðsverkefna Úgandamannsins Tonny Mawejje. Leikurinn fer fram sunnudaginn 2. júní klukkan 17:00 og ætti aðsókn ekki að vera minni en á fyrstu þremur heimaleikjum ÍBV þar sem Sjómannadagshelgin er sömu helgi og flotinn í landi.