Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir skrifaði í dag undir tveggja ára samning við ÍBV. Samningur Bryndísar var útrunninn en hún ákvað að semja aftur við ÍBV þrátt fyrir áhuga annara liða. Bryndís hefur varið mark ÍBV síðastliðin tvö ár með stakri prýði en hún var valin besti leikmaður liðsins 2012. ÍBV er nú á fullu að klára leikmannamál sín fyrir næsta tímabil en fyrir utan Bryndísi þá hefur félagið samið við þær Vesnu Smiljkovic, Shaneku Gordon, Nadiu Lawrence og hina Suður Afrísku Noko Matlou. Liðið vonast til að þær Elísa Viðarsdóttir, Kristín Erna Sigurlásdóttir og �?órhildur �?lafsdóttir semji allar aftur við félagið.
Við erum að vonast til að klára þessi leikmannamál á næstu dögum og ef það gengur eftir erum við vel í stakk búin fyrir átök ársins sögðu forráðamenn liðsins.
Eyjamenn stefna að því að vera með fullmannað lið þegar Lengjubikarinn byrjar í febrúar.