Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra enn ókominn
Slökkvistöðin í Vestmannaeyjum. Mynd: Eyjafréttir/TMS

Tólf dagar eru liðnir frá því að Eyjafréttir óskuðu eftir nöfnum og starfsheitum umsækjenda um starf slökkviliðsstjóra Vestmannaeyja. Listinn hefur enn ekki borist. Umsóknarfrestur rann út 28. október og sendu Eyjafréttir beiðnina daginn eftir.

Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar, sagði í svari til Eyjafrétta að bærinn biði eftir svörum frá umsækjendum um hvort þeir samþykktu birtingu nafna sinna eða vildu draga umsókn sína til baka. „Mun senda upplýsingarnar þegar það liggur fyrir,“ skrifaði Brynjar.

Eyjafréttir hafa ítrekað beiðnina og spurt hvenær listinn verði sendur. Bærinn hefur ekki gefið upp hvenær hans sé að vænta. Að sögn Brynjars er heldur ekki hægt að gefa upp nákvæma dagsetningu fyrir ákvörðun um ráðningu.

Samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga ber að veita upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda þegar umsóknarfrestur er liðinn, nema aðrar takmarkanir laganna eigi við. Í 2. mgr. 17. gr. er heimilt að leita afstöðu umsækjenda til þess hvort upplýsingar sem geta varðað einkahagsmuni eigi að fara leynt, en ákvæðið gerir samþykki þeirra ekki að skilyrði fyrir afhendingu listans. Sé leitað afstöðu umsækjenda samkvæmt ákvæðinu skal veita þeim sjö daga til að svara.

Sérstök regla í 1. mgr. 17. gr. snýr að afgreiðslu upplýsingabeiðninnar. Hafi hún ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku ber bænum að skýra ástæður tafanna og segja hvenær ákvörðunar um beiðnina sé að vænta. Tuttugu daga fresturinn sem Brynjar vísaði til í svari sínu á við um beiðnir um aðgang að gögnum í rannsóknarskyni.

Nýjustu fréttir

Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra enn ókominn
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til vörukynninga
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en verkefnið enn í þróun 
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.