Framtíðarsýn og áherslur á læsi og stærðfræði í skólastarfi Vestmannaeyjabæjar
�?ann 25. ágúst sl. undirrituðu stjórnendur leik- og grunnskólanna, bæjarstjóri og formaður fræðsluráðs sameiginlega framtíðarsýn í menntamálum sem felur í sér að leggja beri áherslu á að efla læsi og stærðfræði í skólastarfi Vestmannaeyjabæjar. Áhersla er m.a. lögð á að styrkja og efla samstarf starfsmanna skólanna og forráðamanna því þar býr aflið sem getur skapað nemendum öruggt og styðjandi umhverfi til náms og stuðlað að árangri þeirra og vellíðan.
Markmiðið er að skólarnir í sveitarfélaginu verði meðal þeirra fremstu á landinu hvað varðar vellíðan nemenda, faglegt starf, kennslu og námsárangur. Nemendur skólanna munu fá skjal afhent, þar sem helstu áhersluatriði framtíðarsýnarinnar eru tíunduð. �?eir, ásamt forráðamönnum, eru beðnir að skrifa undir skjalið og hengja það upp á heimilum sínum til að staðfesta að þeir styðji framtíðarsýnina og vilji leggja sitt af mörkum til að hún gangi eftir. Bæjarbúar allir eru hvattir til að styðja við skólana með ráðum og dáð með jákvæðri og hvetjandi umfjöllun.
Allir þeir, sem komu að gerð framtíðarsýnarinnar og lögðu til málanna, fá miklar þakkir fyrir áhugann sem þeir sýndu og vinnuna sem þeir lögðu fram. �?skin er sú að þessi vinna skili börnum og ungmennum í Vestmannaeyjum auknum árangri, metnaði, og færni til framtíðar.

Nýjustu fréttir

The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.