Rólegt hjá lögreglunni
Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og tiltölulega fá mál sem komu upp. Helgin gekk ágætlega fyrir sig og rólegt í kringum skemmtistaði bæjarins.
Alls liggja fyrir fimm kærur vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna en um er að ræða biðskyldubrot, ólöglega lagningu ökutækja og vanrækslu á að nota öryggisbelti í akstri.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku en þarna hafði bifreið runnið og lenti á grindverki. Engin slys á fólki og minnháttar tjón á bifreiðinni og grindverkinu.
Lögreglan vill minna ökumenn á að nota ökuljósin en töluvert ber á því að ökumenn aki um með svokölluð dagljós kveikt en ekki aðalljós. �?egar dagljósin eru kveikt er yfirleitt ekki kveikt á afturljósunum og því nauðsynlegt að kveikja aðalljósin til að virkja afturljósin. �?etta á auðvitað alltaf við en þó sérstaklega núna í skammdeginu.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.