Hálfnaðir í fertugasta ralli Hafró
maggi_breki_vsv_is
Magnús Ríkarðsson skipstjóri á kæjanum í Eyjum. Ljósmynd/vsv.is

Togarinn Breki VE er væntanlegur til Eyja í kvöld með um 120 tonn af fiski sem veiddist í fyrri hluta togararalls Hafrannsóknastofnunar. Frá þessu er greint á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar.

Hefjum seinni hálfleik á austursvæðinu

Magnús Ríkarðsson skipstjóri segir að liðlega helmingur rallsins sé nú að baki og að löndun lokinni verði haldið til austurs í síðari hluta verkefnisins:

„Okkur hefur gengið vel og veðrið ekki sett strik í reikninginn. Svæðið okkar er frá Snæfellsnesi austur um að Hvalbaksmiðum og við höfum togað á 86 af alls 154 rannsóknastöðvum sem okkur er ætlað að sinna.
Við hefjum seinni hálfleik á austursvæðinu að löndun lokinni og gerum ráð fyrir að enda rallið með annarri löndun í Eyjum.“

Öðlumst dýrmæta reynslu

Árlegu togararalli er ætlað að mæla stofna botnfisks á Íslandsmiðum. Þetta var fyrst gert fyrir fjórum áratugum og Breki VE tekur þátt í verkefninu, sjálfu afmælisralli Hafró, fjórða árið í röð.

Gullver NS, togari Síldarvinnslunnar, rallar líka í fjórða sinn og með Breka og Gullveri eru rannsóknarskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson í sama tilgangi á miðunum.

Sverrir Haraldsson, sviðstjóri botnfisksviðs Vinnslustöðvarinnar, segir það vissulega hafa áhrif á starfsemina að taka Breka úr öflunarrútínu hráefnis í þær vikur sem togararallið taki en frekar jákvæð áhrif en neikvæð þegar allt komi til alls:

„Það hentar okkur mjög vel að fá svona verkefni og sinna því meðfram öðrum veiðum. Við skipuleggjum starfsemina bara með það í huga að togarinn sé upptekinn í öðru tímabundið.
Skipstjórnarmenn á Breka og við í landi líka öðlumst dýrmæta reynslu í rallinu og við höfum mikið gagn af því að kynnast hafrannsóknum á þennan hátt. Við erum sérlega ánægð með samstarfið við stjórnendur Hafró, vísindamennina og rannsóknafólkið sem tekur þátt í þessu og lærum mikið af því.“

Fenginn sérstaklega á ný í brúna

Því er við að bæta að skipstjórinn á Gullveri NS, Steinþór Hálfdanarson, er mikill reynslubolti í togararalli og hefur víst tekið þátt í slíkum verkefnum hátt í þrjátíu sinnum, oftast á togaranum Bjarti. Steinþór hætti á sjónum fyrir þremur mánuðum en á vef Síldarvinnslunnar kemur fram að hann hafi verið fenginn sérstaklega á ný í brúna á Gullveri af þessu tilefni:

„Karlar eins og ég eru stundum fengnir í svona verkefni. Ég telst líklega hafa mjög góða rallreynslu!“

Rannsóknasvæði Gullvers er frá Skjálfanda og austur um að Breiðdalsgrunni. Þá togar skipið líka á Þórsbanka, að færeysku lögsögunni.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.