Bjartmar semur þjóðhátíðarlagið í ár

Bjartmar Guðlaugsson semur þjóðhátíðarlagið í ár. Lagið heitir Eyjarós og segir hann það höfða sérstaklega til þeirra sem hafa orðið ástfangin í Eyjum. Það eru þrjátíu ár síðan Bjartmar samdi síðast Þjóðhátíðarlag en það var textinn við lagið Í Brekkunni sem hann samdi með Jóni Ólafssyni. Eyjarós verður frumflutt í byrjun júní á öllum helstu útvarpsstöðvum og því nógur tími fyrir Þjóðhátíðargesti til að læra textann til að geta sungið sem hæst með í Herjólfsdal.

„Lagið í ár heitir Eyjarós. Þetta er svoleiðis bullandi rómantík og þetta lag mun alveg sérstaklega höfða til þeirra sem hafa orðið ástfangnir á Þjóðhátíð. En svo er þetta líka mjög gott rasskinna eróbikk. Það munu allir raula með,“ segir Bjartmar hlæjandi í viðtali hjá Fréttablaðinu.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.