Gerði réttindabaráttu sjómanna að umtalsefni
Bjarkey-Olsen-Gunnarsdottir_matvaelaradherra
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir. Ljósmynd/matvælaráðuneytið

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra gerði réttindabaráttu sjómanna að umtalsefni sínu á sjómannadaginn.

„Frá því sjómannadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur hafa lög verið sett á kjaradeilur sjómanna og útvegsmanna í fjórtán skipti, oftar en á nokkra aðra stétt. Sem segir sína sögu um samstöðu sjómanna og seiglu, en jafnframt um mikilvægi þeirra í virðiskeðju sjávarútvegsins og fyrir þjóðarbúið. Þess vegna er sjómennska ekki aðeins saga hetjudáða, dirfsku og frægðar. Hún er saga um baráttu, um réttindi og um samstöðu. Stéttasamtök sjómanna hafa um langa hríð háð harða baráttu fyrir réttindum sínum. Með þeim samtakamætti hafa sjómenn í gegnum tíðina bætt kjör sín og réttindi samhliða því að skapa sér öruggara vinnuumhverfi sem hefur frá upphafi verið sérstakt baráttumál, enda var sjóskaði algengur hér á árum áður“.
sagði ráðherra í ávarpi við athöfn í Hörpu þegar sjómenn voru heiðraðir fyrir björgun mannslífa og farsæl félags- og sjómannsstörf. 

Ráðherra fjallaði einnig um samspil vísinda og tækni við öryggi sjómanna og efnahagslegar framfarir þjóðarinnar.

„Með tækniframförum, aukinni vitund um öryggismál og bættum veðurspám hefur sjóslysum fækkað mikið. Hér eftir sem hingað til getum við ekki slegið slöku við í þeirri viðleitni að bæta öryggi sjómanna og koma í veg fyrir slys.
Við höfum frá öndverðu átt mikið undir sjávarúvegi, og það er ekki ofmælt að segja að nytjar á hafinu hafi á síðustu öld fleytt okkur frá því að vera ein fátækasta þjóð Evrópu til þess velmegunarsamfélags sem erum í dag. Það er afskaplega mikilvægt að sjávarútvegurinn fái að vaxa og dafna og að blómleg og fjölbreytt útgerð geti um ókomna framtíð tryggt vinnu, vöxt og velferð á landinu öllu. Tækifærin eru svo sannarlega til staðar ekki síst í nýsköpun og margskonar fullvinnslu afurða.
Þar spila vísindin stóran þátt og hefur það verið gæfa okkar að nýta fiskistofna við Íslandsstrendur með ábyrgum og sjálfbærum hætti síðustu áratugi. En engin mannanna verk eru svo fullkomin að þau megi ekki bæta. Og ég trúi því að við séum sammála um það að fiskurinn í sjónum sé sameiginleg auðlind okkar allra“.

sagði Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og greint er frá í tilkynningu frá matvælaráðuneytinu.

Nýjustu fréttir

Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
Í gær höfðu 96 kosið utan kjörfundar í Vestmannaeyjum
MATEY Seafood Festival snýr aftur
1.maí, baráttudagur verkafólks á Íslandi
ÍBV tekur á móti Víkingi R. í dag
Áfall fyrir ÍBV – Amalia Frøland með slitið krossband
Meiri sandur í höfninni – dýpkun hefst í fyrramálið
Maí sól – Lag til ömmustelpunnar
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.