Til Köben til að víkka sjóndeildarhringinn

Sigrún Gígja Sigurjónsdóttir útskrifaðist frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyja í vor af félagsvísindalínu. Hún fékk einnig viðurkenningar fyrir góðan árangur í dönsku, fyrir félagsstörf, fyrir mjög góðan heildarárangur í félagsvísindagreinum á stúdentsprófi og fyrir mjög góðan heildarárangur á stúdentsprófi.

Hvað stendur upp úr eftir skólagöngu þína í FÍV?

Það sem stendur uppúr fyrir Sigrúnu eftir hennar skólagöngu í FÍV eru skemmtilegu kennararnir. „Það hefði verið töluvert erfiðara að komast i gegnum námið ef það hefði ekki verið fyrir stuðninginn og skemmtunina sem sumir kennarar voru með.”

Í sumar tekur við hjá henni vinna. „Ég er í tveimur vinnum á Einsa Kalda og Eymundsson til að reyna að safna smá fyrir næsta haust. Ég er að fara flytja til Kaupmannahafnar til vinkonu minnar og víkka aðeins sjóndeildarhringinn.”

Hvað lærdóm varðar í framhaldinu segir Sigrún Gígja að hún sé ekki alveg ákveðin. „En held að eg myndi bara í eitthvað hönnunar tengt nám. Þá arkítektur eða grafíska hönnun eða slíkt.”

Spurð hvort það sé eitthvað sem hún vilji koma á framfæri á þessum tímamótum segir hún að þó að hún sé mjög spennt fyrir þessum nýja kafla i lífi sínu mun hún sakna mjög FÍV og Vestmannaeyja.

 

Nýjustu fréttir

Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.