Ellefu verkefni hlutu styrk
9. maí, 2025
Viltu Hafa Ahrif Vestm Fb P
Ljósmynd/Vestmannaeyjar.is

Í dag undirrituðu Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs og Hrefna Jónsdóttir, formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs samninga við styrkþegar vegna verkefna sem hlutu styrk.

Í apríl síðastliðnum auglýsti bæjarráð Vestmannaeyja í tengslum við síðari úthlutun ársins á styrkjum vegna ,,Viltu hafa áhrif” eftir umsóknum. Markmiðið sjóðsins er að styrkja menningar-, lista-, íþrótta- og tómstundastarfsemi í Vestmannaeyjum með því að styðja við og hvetja einstaklinga, félagasamtök og listahópa til eflingar á viðburðum og verkefnum á sviði menningar, lista, íþrótta og tómstunda. Fjölmargar góðar ábendingar hafa borist í gegnum tíðina. Má þar m.a. nefna styrki til fjölda sýninga, menningartengda bókaútgáfa, leiktækja á opnum svæðum og göngustíga.

Listamenn, einstaklingar og félagasamtök verða að vera skráð í Vestmannaeyjum og verkefni/viðburður þarf að fara fram í Vestmannaeyjum, segir í tilkynningu á vef bæjaryfirvalda.

Verkefnin sem hljóta styrki eru fjölbreytt og spennandi að vanda. Óskar Vestmannaeyjabær öllum styrkþegum til hamingju. Hér að neðan má sjá lista yfir þau verkefni sem hlutu styrk úr sjóðnum að þessu sinni.

 

  1. Hreinsunardagur ÍBV Knattspyrnu – 500.000 kr.
    Um er að ræða hreinsunardag ÍBV í maí/júní þar sem til stendur að hreinsa allt nærumhverfi félagsins. Í ár á að bæta um betur með því að mála, sparsla og gróðursetja. Með þessu skapast góð stemning þar sem fjölskyldur koma og eiga góðan dag saman, ásamt því að leggja sitt af mörkum til umhverfisins.
  2. Knattspyrnuskóli ÍBV – 350.000 kr. 
    Um er að ræða knattspyrnuskóla fyrir yngstu iðkendur ÍBV síðustu tvær vikurnar fyrir Þjóðhátíð þegar engar æfingar koma til með að eiga sér stað. Knattspyrnuskólinn fer fram utandyra á knattspyrnuvöllum bæjarins og möguleiki er á að vera innandyra ef veðurskilyrði verða ekki góð. Skólastjóri verður yfir skólanum og munu leikmenn og þjálfarar ÍBV stjórna æfingum og miðla af þekkingu sinni. Í lok skólans fá allir þátttakendur gjöf.
  3. Töfrar og tækifæri – Listasmiðja fyrir börn 500.000 kr.
    Um er að ræða námskeið í listum af ýmsu tagi, s.s. kvikmyndagerð, handritaskrif, dans, myndlist, hljómsveitarnámskeið o.s.frv. Þátttakendur munu velja sér áherslu og fá kynningu á hinum ýmsu formum lista og skapandi hugsunar. Markmið listasmiðjunnar er að opna augu barna fyrir eigin hæfileikum og skapa vettvang fyrir þau við að fást við listir. Að listamenn í Eyjum séu sýnilegir börnum og kynni þeim störf sín og hvernig þeir náðu árangri í sinni listsköpun. Stefnt er að hafa listasmiðjuna í tvær vikur, fyrir Goslokahátíð.
  4. Golfnámskeið fyrir konur – 500.000 kr.
    Meginmarkmið verkefnisins er að auka golfiðkun meðal kvenfólks í Vestmannaeyjum á öllum aldri. Boðið verður upp á opna tíma ( ókeypis ) fyrir allar konur í Vestmannaeyjum frá tímabilinu 26. maí – 6. júní. GV mun útvega alla aðstöðu og þau tæki sem þarf til þess að halda slíkt námskeið. Fyrirlestur fer fram í golfskála GV þar sem kynning verður á starfsemi GV og hvað golf getur verið heilsueflandi og jafnframt skemmtileg íþrótt óháð kyni og aldri. Kennarar og umsjónarmenn verkefnis eru eftirtaldir : Karl Haraldsson yfirkennari, Hafdís Snorradóttir formaður kvennanefndar GV, Jón Valgarð Gústafsson, Kristgeir Orri Grétarsson og Júlíus Hallgrímsson kennarar.
  5. Námskeið fyrir konur og eldriborgara í pílu – 560.000 kr.
    Starfsemi Billiard- og pílufélagsins hefur vaxið hratt undanfarin misseri en boðið er upp á aðstöðu, æfingar og keppni bæði í pílukasti og snóker. Haldið verður sérstakt námskeið fyrir konur á öllum aldri í pílukasti og landsliðsþjálfari á vegum Pílusambands Íslands fenginn til að leiðbeina. Einnig verður haldið námskeið í pílukasti fyrir eldri borgara með sama þjálfara. Þá munu félagsmenn og þau börn og ungmenni sem stundað hafa æfingar hjá félaginu fá þjálfun hjá viðkomandi þjálfara.
  6. Útilistasýning og steinamálun Lista og- og menningarfélags Vestmannaeyja – 150.000 kr. 
    Lista- og menningarfélagið mun standa fyrir útilistasýningu og steinamálun í sumar og á Goslokum á Stakkagerðistúni. Félagið hefur tvisvar sinnum haldið sýningu eins og þessa. Þetta er menningarviðburður sem er skemmtilegur og gefur félaginu tækifæri til að vinna að því að fagna Goslokum með bæjarbúum og gestum. Einnig ætlar félagið að vera búið að dreifa máluðum steinum um bæinn sem bæði listamenn og börn hafa málað hjá félaginu á árinu. Gerður verður einhverskonar ratleikur fyrir börnin.
  7. Sveitapiltsins draumur – 300.000 kr. 
    Sveitapiltsins draumur, vortónleikar Karlakórs Vestmannaeyja sem haldnir verða 16. maí 2025. Efnisskrá tónleikanna að þessu sinni eru hefðbundnari karlakóralög í bland við annað léttmeti.
  8. Allra veðra von – 400.000 kr. 
    Á árunum 2002-2008 var árlega haldin hljómsveitakeppnin „Allra veðra von“ en þar stóð öllum hljómsveitum kostur á að taka þátt, einu skilyrðin voru að hljómsveitirnar þyrftu að vera með frumsamið efni. Endurreisn verkefnisins varð að veruleika þann 12. október síðastliðinn þar sem sex hljómsveitir tóku þátt í keppninni auk þriggja gestahljómsveita. Tilgangur keppninnar er að auka enn frekar menningarlíf Vestmannaeyja og að gefa hljómsveitum, óháð aldri og kyni, tækifæri til þess að koma sér á framfæri á stóru sviði með góðum hljóð og ljósabúnaði og fyrir stóran hóp af fólki. Keppnin mun fara fram laugardaginn 13. september í Höllinni í Vestmannaeyjum.
  9. Tónleikar Kórs Landakirkju – 300.000 kr.
    Kór Landakirkju hefur verið leiðandi í flutningi kirkjutónlistar sem og í flutningi sígildrar tónlistar í Eyjum. Það eru liðin 28 ár síðan síðasta stórverkið var flutt í Vestmannaeyjum. Nú stendur það til bóta og stefnir Kór Landakirkju á að flytja Sálumessu eftir franska tónskáldið Gabriel Fauré. Kórinn hefur fengið til liðs við sig Karlakór og Kvennakór Vestmannaeyja ásamt tveimur einsöngvurum. Meginmarkmið tónleikanna er að auðga tónlistarlífið í Eyjum og bjóða uppá sígilda tónlist sem heyrist alltof lítið af í Eyjum. Tónleikarnir verða samtvinnaðir minningarstund sem er alltaf haldinn á þessum messudegi. Þar er kveikt á kertum fyrir alla þá sem hafa verið jarðsungnir frá Landakirkju á síðastliðnu ári. Tónleikagestum verður gert kleift að kveikja á kerti til minningar um horfna ástvini.
  10. Jólaskógur Dýravinafélags Vestmannaeyja – 350.000 kr. 
    Búa á til jólaskóg í desember í skóginum við Löngulá sem er við aðstöðu dýraþjónustunnar. Lýsa á skóginn upp, gera aðstöðu þar sem hægt er að setjast niður og fá sér kakó og vöfflur sem Dýravinafélagið mun selja í fjáröflunarskyni fyrir félagið. Stefnt er að því að fá jólasveina til að koma í heimsókn, útbúa lítinn ratleik um skóginn og fleira. Markmiðið er að gera skemmtilega upplifun fyrir fjölskyldur á þessum frábæra tíma, kynna um leið félagið og sýna aðstöðuna sem það hefur upp á að bjóða.
  11. Jólahvísl – 300.000 kr. 
    Frá árinu 2016 hefur Hvítasunnukirkjan haldið tónleika fyrir jólin sem kallaðir eru Jólahvísl. Hugsunin með tónleikunum er að bjóða fólki ókeypis á hugljúfa tónleika sem minna alla á friðarboðskap jólanna og þar með gefa öllum tækifæri til að sækja jólatónleika óháð efnahag.
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst