Endurvaldi tölurnar og endaði með milljónir!

Þriðjudaginn 17. júní, á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga, hlaut heppinn Íslendingur glæsilegan vinning í EuroJackpot – rúmar 35 milljónir króna!

Í tilkynningu frá Getspá segir að vinningshafinn, sem er kona, hafi keypt sjálfvalsmiða í gegnum Lottóappið og ákvað að hreinsa út tölurnar sem komu fyrst upp og fá nýjar í staðinn. Sú ákvörðun reyndist sannarlega skynsöm – því hún var ein af sex heppnum Evrópubúum sem skiptu með sér öðrum vinningi.

„Ég trúði þessu varla þegar símtalið kom frá Íslenskri getspá,“ segir hún og bætir við að það hafi verið frekar erfitt að klára vinnudaginn eftir slíkar fréttir. Hún ákvað þó að bíða með að segja manninum sínum frá vinningnum þar til þau voru komin heim – svo hann gæti allavega lokið sínum degi í ró og næði.

Hjónin, sem eru rík af börnum og barnabörnum, sjá fyrir sér að nota vinninginn í skemmtilegt fjölskyldufrí þar sem allir geta notið saman. „Það er dásamlegt að geta deilt svona gleði með sínum nánustu,“ bætir hún við.

Nýjustu fréttir

Þessi börn vinna lítil kraftaverk á hverjum degi
Góð veiði hjá Vestmannaey og Bergey
Vill gera sérfræðiþekkingu í íþróttum aðgengilegri fyrir alla
Guðmundur Tómas nýr meistari Vöruhúsdeildarinnar
Útboð heilsuræktar – hvað sýna fjárhagsgögnin?
Vikan í Eyjum: Skipalyftan 45 ára, fullt hús hjá Grýlu og sigur á Akureyri
Walmart skoðar aðstæður í Vestmannaeyjum
Íþróttamaður mánaðarins – Edda Dögg Sindradóttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.