Raggi Sjonna og dúfurnar í Fiskó
Raggi Sjonna sýndi hluta af fjölbreyttri dúfnahjörð sinni.

„Í gærmorgun sá ég á Facebook að Eyjamaðurinn Raggi Sjonna ætlaði að kynna dúfur sínar í Gæludýrabúðinni Fisko Kauptúni 3 í Garðabæ,“ segir Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta sem var á höfuðborgarsvæðinu um helgina.

„Raggi sem fyrir löngu er orðinn landsfrægur sem einn öflugasti dúfnabóndi landsins sýndi aðallega mismunandi liti í dúfunum og hvernig bréfadúfurnar skiluðu sér heim. Hringur á fótum þeirra virkar eins og segulrönd til að taka tímann sem þær voru að fljúga  hverja leið.

Við Valgerður, dóttir mín litum við í Fiskó og ræddum við karlinn og ekki var áhugi unga fólksins minni en þess fullorðna. Raggi var kampakátur yfir leik ÍBV og Vals, sagði að svona úrslit væru til þess að lyfta deginum en nú frekar á flug. Áhugavert að sjá úrvalið hjá karlinum,“ segir Óskar Pétur sem lét þessar myndir fylgja með.

 

 

Nýjustu fréttir

Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Skólastarf að hefjast á ný í FÍV
Íslendingar eru þjakaðir af launahækkunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.