Hröð uppbygging – Atvinnuþróun og nýsköpun – Öflugir fjárfestar – Um 60% hluthafa í Vestmannaeyjum – Sérhæfð störf – Sjúkdómaöryggi – Sjálfbær framleiðsla – Hágæða framleiðsla – Ný höfn nauðsyn
Uppbygging Laxeyjar er stærsta atvinnuverkefni sem ráðist hefur verið í í Vestmannaeyjum frá upphafi. Í viðtali við frumkvöðlana, Daða Pálsson og Hallgrím Steinsson fara þeir yfir aðdragandann, áskoranirnar og þá miklu vinnu sem liggur að baki. Þeir ræða jafnframt stöðu samfélagsins, ábyrgð stjórnvalda og mikilvægi þess að skapa fjölbreytt og sérhæfð störf sem styrkja framtíð Vestmannaeyja. Þeir varpa ljósi á metnaðarfulla sýn þeirra, alþjóðlega samkeppni og þá trú, að nýsköpun geti orðið lykill að áframhaldandi vexti bæjarfélagsins. Framleiðsla er hafin og lofa fyrstu skrefin góðu en ljónin á veginum voru mörg og erfið viðureignar en þeir ruddu brautina með seiglu og góðra manna hjálp. Laxey fékk Fréttapýramídann sem fyrirtæki ársins 2025.
Nánar í nýjasta blaði Eyjafrétta þar sem er að finna yfirgripsmikið viðtal við þá félaga: Hægt er að gerast áskrifandi að Eyjafréttum hér á vefnum, en blaðið fæst einnig í lausasölu í Tvistinum og á Kletti. Áskrifendur geta nálgast vefútgáfuna hér. Ef þú vilt gerast áskrifandi þá er þetta síðan sem þú getur með auðveldum hætti náð þér í blaðið.