Elliði með stórleik gegn Kiel
Elliði Snær Viðarsson og Guðjón Valur, þjálfari Gummersbach.

Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson átti frábæran leik fyrir Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Línumaðurinn knái skoraði níu mörk úr tíu skotum þegar þeir unnu átta marka sigur á Kiel, 26-34, á útivelli. Leikurinn var nokkuð jafn og var staðan í hálfleik til að mynda 15-14, Kiel í hag. Gummersbach voru svo mun sterkari á lokakafla leiksins og lönduðu öruggum sigri.

Gummersbach situr, eftir sigurinn, í sjötta sæti deildarinnar með 31 stig. Liðið er þremur stigum á eftir Lemgo og Kiel sem sitja í sætunum fyrir ofan. Gummersbach á þó leik til góða. 

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði heima í einvíginu gegn Haukum
Óþolandi óvissa með samgöngur til Vestmannaeyja
Fyrirliðinn lék sinn 300. deildarleik
Baldur leysir Herjólf af
Eyjafréttir standa við „samsuðuna“
Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina
Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.