Lúðrasveitir sameinast með stórstjörnum í Hörpu
Sameiginleg æfing sveitanna í Hljómskálanum. Mynd: Harpa.

Lúðrasveit Reykjavíkur blæs til veglegrar veislu í Hörpu laugardaginn 25. apríl. Með sveitinni koma fram fjórar af skærustu stjörnum íslenskrar dægurtónlistar: Mugison, Ragga Gísla, Una Torfa og Júníus Meyvant. Þau flytja úrval laga sinna við undirleik sveitarinnar undir stjórn Hannah O’Connor. Lúðrasveit Vestmannaeyja tekur einnig þátt í tónleikunum.

Mikil og góð vinátta er á milli Lúðrasveitar Reykjavíkur og Lúðrasveitar Vestmannaeyja og á hún sér djúpar rætur. Margir Eyjamenn hafa spilað með LR í gegnum tíðina og gera enn í dag. „Það er alltaf eitthvað sérstakt við samstarfið milli sveitanna – þetta er ekki bara tónlist, heldur líka vinátta sem hefur byggst upp í gegnum árin,“ segir Jarl Sigurgeirsson, stjórnandi Lúðrasveitar Vestmannaeyja.

Tengingar milli sveitanna má einnig rekja til Hljómskálans, þar sem ýmis tónlistarævintýri urðu til. Þar má meðal annars nefna stuðsveitina Stallah Hú sem á rætur sínar á einu af gullaldartímabilum handboltans í Vestmannaeyjum.

Undanfarin ár hefur samstarfið falist í sameiginlegum æfingum á vorin, þar sem sveitirnar hittast í Eyjum og enda síðan á tónleikum bæði þar og í Reykjavík. „Við höfum þróað þetta samstarf smám saman og það hefur alltaf skilað frábærri stemningu,“ segir Jarl.

Í ár tók verkefnið hins vegar óvænta og skemmtilega stefnu þegar Mugison kom inn í myndina. „Þetta tók skemmtilega beygju þegar Mugison kom inn í myndina og allt í einu voru fleiri listamenn komnir í hópinn,“ segir hann.

Nú hafa sveitirnar þegar hist ásamt listamönnunum í Hljómskálanum og fyrstu æfingar lofa virkilega góðu. „Æfingarnar hafa gengið ótrúlega vel og það er alveg ljóst að þetta verður mögnuð upplifun fyrir bæði okkur og áhorfendur.“

Það er því full ástæða til að hvetja fólk til að tryggja sér miða á þessa einstöku tónleika. „Það er óhætt að mæla með því að fólk næli sér í miða – þetta verður tónlistarveisla sem enginn ætti að missa af.“

Þótt tónleikarnir 25. apríl séu nú í brennidepli er framtíðin líka spennandi. „Við erum einnig farin að kasta hugmyndum á milli okkar fyrir næsta vor – en það verður að koma í ljós hvað verður úr því.“

 

Nýjustu fréttir

ÞESAL – Partýljón, teiknimyndir, djamm og djús
Lúðrasveitir sameinast með stórstjörnum í Hörpu
Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum
Engin lognmolla í nýju starfi
Samgöngur við Vestmannaeyjar – framtíðarsýn eða bráðabirgðalausnir?
Atli Steinn Arnarson semur við ÍBV
World Class mun rísa samhliða búningsklefunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.