Kvennalið ÍBV í handbolta hefur leik í úrslitakeppni Olís deild kvenna á miðvikudaginn þegar þær fá Hauka í heimsókn kl. 18:00 í undanúrslitum. Skyttan Birna Berg Haraldsdóttir hefur verið frábær í vetur og algjör lykilmaður í liði ÍBV. Hún var til að mynda valin í lið Olís deildar kvenna hjá handkastinu.
Tímabilið hjá kvennaliðinu hefur verið aðeins frábrugðið frá tímabilinu í fyrra þar sem þær rétt tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni en í ár sátu þær hjá í fyrstu umferðinni þar sem þær enduðu deildina í öðru sæti.
Birna segir að sér og liðinu líði ótrúlega vel með að vera komnar í úrslitakeppnina og eru spenntar fyrir því að hún sé að byrja loksins. ,,Maður er pínu búin að vera að telja niður dagana síðan í lok mars. Það er svo miklu skemmtilegra að vera í toppbaráttu en í stressinu sem fylgir því að rétt komast inn í úrslitakeppnina eins og í fyrra.”
Birna talar um hvað stemningin í liðinu og baráttan sé það sem einkenndi liðið framan af á tímabilinu og segir að það sé mikilvægt að þær taki það með sér í úrslitakeppnina. ,,Það er ótrúlega mikilvægt að við náum upp þessari baráttu og gleði í vörninni því þá verður þetta svo miklu skemmtilegra og þá fáum við auðveld mörk í kjölfarið sem er svo dýrmætt í úrslitakeppninni. Þar sem þetta snýst um að duga eða drepast.”
Hvernig undirbúið þið ykkur fyrir þessa mikilvægustu leiki á leiktíðinni?
,,Undirbúningurinn er í rauninni eins og fyrir venjulegan deildarleik, við tökum 1-2 videófundi fyrir leiki og á leikdegi. Þá tökum við léttar lyftingar um morguninn eða í hádeginu og borðum svo saman á Vöruhúsinu. Starfsfólkið þar hefur séð til þess að við höfum mætt í leikina með fullan tank í allan vetur. Mér finnst eiginlega hættulegt að fara að hrófla við rútínunni bara af því þetta er úrslitakeppni, heldur er bara betra að halda í það sem hefur virkað í vetur og vinna áfram með það.”
ÍBV hefur á köflum spilað frábærlega í vetur og virðist blandan af reynslumeiri leikmönnum og yngri leikmönnum liðsins vera nokkuð góð. Birna talar um að það sé mikilvægt að njóta þess að vera komnar í undanúrslit og vera stoltar af því sem þær hafa gert í vetur. Hún segir jafnframt að mikilvægt sé að þær spili góða vörn og fái þar af leiðandi fleiri bolta varða. ,,Það er nú einu sinni þannig að sókn vinnur leiki en vörn vinnur titla” bætir hún við. Stelpurnar hafa lagt hart að sér í vetur og segir Birna að árangurinn sem þær hafi náð sé í raun engin tilviljun. Þær eru búnar að vera nokkuð stabílar á þessu tímabili að undanskildum nokkrum feilsporum sem þær reyndu þó að læra af.
Stelpurnar þurfa að vera á deginum sínum til að knýja fram sigur gegn sterku liði Hauka enda eru þetta liðin sem enduðu í öðru og þriðja sæti Olís deildarinnar. Birna metur möguleikana á sigri vera góða en Hauka-stelpurnar eru búnar að vera á mikilli siglingu eftir áramót og hafa allir leikirnir verið jafnir á móti þeim í vetur.
,,Við höfum unnið tvo og tapað einum. Þannig ég býst við hörku einvígi og ég býst við ýmsum varnarútfærslum frá þeim til að reyna að koma okkur á óvart, en við munum vera vel undirbúnar. Nú fer ég að hljóma eins og gömul plata en ég tel enn og aftur mikilvægt að við náum upp góðum varnarleik og njótum þess að spila góða vörn saman því þá verða leikirnir svo miklu skemmtilegri.”
ÍBV spilaði síðast gegn Val í deildinni, 28. mars og svo tók við landsleikjapása svo það eru 17 dagar síðan þær spiluðu síðast en Birna segir stemninguna í liðinu vera góða.
,,Stemningin er góð og manni finnst vera liðinn alltof langur tími frá síðasta leik þannig að við þurfum kannski að passa spennustigið svo við verðum ekki eins og beljur að vori í fyrsta leik.”
Hversu mikilvægir eru stuðningsmennirnir fyrir ykkur og einhver skilaboð til þeirra?
,,Stuðningsmennirnir eru okkar áttundi maður og hefur einkennt ÍBV undanfarin ár. Það á að vera leiðinlegt að koma til Eyja sem útilið og við munum gera allt sem við getum til að gera fólkið okkar stolt. Það er ótrúlegur munur að spila á heimavelli og í öðrum íþróttahúsum upp á landi þar sem oft er fámennt í stúkunni en þá eru stuðningsmenn ÍBV oftar en ekki samt í meirihluta. Mig langar bara að hvetja fólk til að mæta á leikina hjá okkur og hjálpa okkur að sigla þessu heim. Stuðningurinn i bænum skiptir sköpum og að fá fullt af fólki í stúkuna gerir svo mikið fyrir okkur inná vellinum. Það hefur verið frábær mæting á leikina okkar í vetur og við erum ótrúlega þakklátar fyrir það! Nú vonum við bara að enn fleiri sjái sér fært að mæta. Við lofum gleði og baráttu sem hefur verið svo einkennandi fyrir okkar frábæra lið í vetur.”
Að lokum segir Birna ,,Áfram ÍBV”.