Gleðilegt sumar

Lundinn að setjast upp og þar með komið sumar hjá mér að venju. Ég bjóst reyndar ekki við því að hann myndi setjast upp í kvöld, enda svolítill vindur en það er líka hlýtt og það hentar lundanum vel. Þetta er reyndar aðeins fyrr en síðustu árin, en samt á því tímabili sem ég hef […]

Lundinn sestur upp

Lundar_opf_DSC_7709

Fyrstu lundarnir settust upp í Vestmannaeyjum í dag. Sást til lunda í og við Kaplagjótu við Dalfjall í kvöld. Lundinn er á sínu vanalega róli, því ef skoðuð eru síðustu ár má sjá að hann sest upp á bilinu 13. til 19. apríl. Í Vestmannaeyjum er ekki síður talað um lundann sem vorboðann ljúfa en […]

Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn

Innviðaráðuneytið hefur veitt samþykki fyrir framlengingu á ríkisstyrktu áætlunarflugi til Vestmannaeyja fram til næstu mánaðamóta. Ákvörðunin er tekin í ljósi stöðunnar í Landeyjahöfn sem hefur haft veruleg áhrif á samgöngur milli lands og Eyja. Samkvæmt tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar mun ráðuneytið í framhaldinu hafa samband við flugfélagið Nordlandair um áframhaldandi fyrirkomulag flugsins. Viðbragð við truflunum […]

Álfsnesið þurfti frá að hverfa

Dýpkunarskipið Álfsnesið hefur tímabundið þurft að hætta störfum við Landeyjahöfn vegna veðurs. Þetta kemur fram í nýjum upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar. „Álfsnesið þurfti frá að hverfa vegna veðurs en mun hefja dýpkun að nýju á fimmtudag, svo framarlega sem veðurspár ganga eftir,“ segir Pétur. Óstöðugar aðstæður á svæðinu hafa áfram áhrif á […]

Íris um samgöngumálin

Þessi tími – þegar samgöngurnar okkar í Landeyjahöfn eru í lamasessi – reynir þvílíkt á þolrifin og erum við öll sem hér búum löngu búin að “missa kúlið”. Sama ástandið er uppi á hverju ári af einfaldri ástæðu: höfnin er ekki tilbúin. Þetta er reyndar óvenju slæmt núna því höfnin hefur ekki opnað svona seint […]

Hoppað á vagninn

Þegar ég var ungur fór ég að vinna hjá bróður tengdaföður míns, Sigurjóni í Letri. Letur var þekkt sem undergrpund bókaútgáfa og fjöldi þekktra rithöfunda hófu ferilinn þar. Letur var líka offset fjölritunarstofa og þar voru bækurnar unnar. Starfsmenn voru nokkrir, þar á meðal öðlingurinn hann Leifur. Leifur var ekkill og hafði aldrei gifst eftir […]

Samgöngur – Bréf til forsætis- og innviðaráðherra

Það er yndislegt að búa í Vestmannaeyjum og ég myndi hvergi annars staðar vilja búa. Ég veit að margt gott hefur verið gert varðandi samgöngur milli lands og eyja, en tel mikilvægt að aðrir fái smá innsýn í það sem við búum við. Eins og margir vita hefur ekki verið hægt að halda uppi siglingaráætlun […]

Úrslitakeppnin hjá stelpunum að hefjast

Kvennalið ÍBV í handbolta hefur leik í úrslitakeppni Olís deild kvenna á miðvikudaginn þegar þær fá Hauka í heimsókn kl. 18:00 í undanúrslitum. Skyttan Birna Berg Haraldsdóttir hefur verið frábær í vetur og algjör lykilmaður í liði ÍBV. Hún var til að mynda valin í lið Olís deildar kvenna hjá handkastinu. Tímabilið hjá kvennaliðinu hefur […]

Dýpið minnkaði um meter í síðustu brælu

User comments

Kröftug suðaustan-alda sem gekk yfir dagana 6.–8. apríl hefur haft veruleg áhrif á aðstæður í Landeyjahöfn. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, hefur dýpi við höfnina minnkað um heilan metra og sandur safnast upp framan við garðana. „Eftir þessa öldu minnkaði dýpið úr um -3,0 metrum niður í -2,0 metra og mikill sandur safnaðist […]

Opinn borgarafundur í Eyjum

Kosningabaráttan fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er farin af stað af fullum krafti og fram undan er líflegt kosningaferðalag á vegum Morgunblaðsins og mbl.is. Að sögn Ásthildar Hannesdóttur, verkefnastjóra í myndskeiðaframleiðslu Morgunblaðsins er markmiðið skýrt: að færa umræðuna nær fólkinu. „Við höfum nú hrundið af stað kosningaferðalagi um landið þar sem aðeins um fimm vikur eru til […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.