Samgöngur - Bréf til forsætis- og innviðaráðherra
Þórunn Pálsdóttitr hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir búsett í Vestmannaeyjum.
Þórunn: Mikið hlakka ég til þegar jarðgöng verða opnuð milli lands og Eyja.

Það er yndislegt að búa í Vestmannaeyjum og ég myndi hvergi annars staðar vilja búa. Ég veit að margt gott hefur verið gert varðandi samgöngur milli lands og eyja, en tel mikilvægt að aðrir fái smá innsýn í það sem við búum við.

Eins og margir vita hefur ekki verið hægt að halda uppi siglingaráætlun Herjólfs til Landeyjahafnar, þar sem dýpkunarskipið Álfsnes nær ekki að dýpka vegna ölduhæðar. Af þeirri ástæðu hefur verið ríkisstyrkt flug til eyja á þessu tímabili (ekki á þriðjudögum og miðvikudögum), og oft aðeins framlengt um tvær vikur í senn.

Ég ætla að taka fyrir ykkur dæmi.

Áætlunarflug til Vestmannaeyja hætti í gær samkvæmt samningi Innviðaráðuneytisins við Nordlandair, og hefur hann ekki verið framlengdur. Eldri sonur minn á að mæta í aðgerð á morgun. Við þurfum því að panta með Herjólfi til Þorlákshafnar og gista eina nótt í Reykjavík. Þessi bátsferð mun taka fjórar klukkustundir hvora leið vegna bilunar í Herjólfi sem kom upp síðustu helgi.

Ef það væri flug frá Eyjum alla daga vikunnar myndi það taka hann um 20 mínútur að fara til Reykjavíkur. Foreldrar mínir, sem eru búsettir í Eyjum en staddir í Reykjavík, gætu þá fylgt honum í aðgerð og keyrt hann aftur í flug sama dag. Þetta væri mun þægilegra ferðalag fyrir hann eftir aðgerð.

Nú erum við að fara að ferma yngri peyjann okkar næstu helgi. Við vitum ekki hversu margir gestir munu mæta, þar sem það veltur allt á því hvort siglt verður um Landeyjahöfn. Skiljanlega treysta gestir sér ekki í siglingu frá Þorlákshöfn.

Á hverjum degi – og stundum oft á dag – förum við (eins og meirihluti Eyjamanna) inn á Marinetraffic til að athuga hvar Álfsnesið er statt. Það var fyrir vestan, en í síðustu viku sigldi það til Kópavogshafnar. Eyjamenn eru líka mjög duglegir að fylgjast með veðurspám á vedur.is (og öðrum veðursíðum) til að kanna ölduhæð, öldulengd og hvort sé stórstreymi.

Loksins, síðastliðinn laugardag, öllum til mikillar gleði, lagði Álfsnesið af stað frá Kópavogi. Hins vegar fór það ekki til Landeyjahafnar heldur til Þorlákshafnar. Nú er það í Landeyjahöfn að reyna að moka, en það gengur víst erfiðlega þar sem dýpið er svo lítið.

Ég veit að það geta alltaf komið upp bilanir og ekkert við því að gera. Álfsnesið, sem fengið var til að dýpka í Landeyjahöfn, ræður einfaldlega ekki við þær erfiðu aðstæður sem þar eru. Sem betur fer er von á öflugra dýpkunarskipi í haust, en það er of langt í það miðað við stöðuna í dag.

Núna er beðið eftir sérfræðingi frá Noregi til að meta bilunina í Herjólfi. Kannski þarf Herjólfur að fara í slipp – og hvað gerist þá?

Nokkrar vangaveltur:
➡️ Hefði átt að fá öflugra skip, jafnvel til skemmri tíma, sem gæti dýpkað höfnina í Landeyjum hraðar og við erfiðari skilyrði en Álfsnes ræður við?
➡️ Hefði Innviðaráðuneytið átt að gera lengri samning við Nordlandair, þar sem ljóst er að aðstæður í Landeyjahöfn eru ekki nægilega góðar fyrir reglulegar siglingar? Í gær hætti flug til eyja og við vitum ekki hvort það verður tekið upp aftur. Það þarf meiri fyrirsjáanleika í flugsamgöngum til Vestmannaeyja og að bjóða upp á flug alla daga, allt árið um kring.
➡️ Væri hægt að bæta upplýsingaflæði til íbúa varðandi samgöngur til og frá Vestmannaeyjum?

Þessi póstur var sendur á Innviðaráðuneytið og forsætisráðherra.

Mikið ofboðslega hlakka ég til þegar jarðgöngin milli Vestmannaeyja og fasta landsins verða opnuð.

Þórunn Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir búsett í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.