Gleðilegt sumar
Lundinn er sestur upp í Eyjum.
Georg An Bakgr 2

Aðsend grein

Georg Eiður Arnarson

Lundinn að setjast upp og þar með komið sumar hjá mér að venju. Ég bjóst reyndar ekki við því að hann myndi setjast upp í kvöld, enda svolítill vindur en það er líka hlýtt og það hentar lundanum vel.

Þetta er reyndar aðeins fyrr en síðustu árin, en samt á því tímabili sem ég hef séð lunda koma upp á. Hef reyndar aðeins tvisvar séð hann setjast upp þann 13. en þetta er svo sem á svipuðum tíma á hverju ári.

Í vetur bárust okkur slæmar fréttir af miklu magni af dauðum lunda úti í heimi, en reyndar fylgdi fréttinni mynd af aðeins einum dauðum lunda en nýlega skoðaði ég nokkrar svona síður og rakst þar á eina þar sem fjallað er um það að 22 þúsund lundar hefði rekið dauðir á land einhverstaðar í Frakklandi, en merkilegt nokkuð þá var í þessari umfjöllun bara myndir af lifandi lundum, sem segir svolítið um sannleiksgildi svona frétta enda eru þetta fyrst og fremst áróðurs fréttir frá öfga náttúruverndar samtökum.

En lundinn er mættur í milljónatali eins og alltaf og vonandi sjáum við mikið af honum í sumar og mikið af pysjum í lok sumars.

Ef ég man rétt þá eru núna liðlega 10 ár síðan lundinn fór að taka við sér aftur hér í Eyjum, sem er bara frábært.

Gleðilegt lunda sumar allir.

 

Georg Eiður Arnarson

Nýjustu fréttir

Lúkas Goði – Stefnan tekin á atvinnumennsku
Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim á morgun
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.