Spurt og svarað: Jessý Friðbjarnardóttir frá Eyjalistanum
Jessý frá Eyjalistanum.

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins.

Nafn: Jessý Friðbjarnardóttir.

Aldur: Fædd þann 20. júlí 1984.

Fjölskylda: Er í sambúð með Ómari Páli Erlendssyni og eigum við saman dótturina Magneu Eveyju og ekki má gleyma hundinum Ölfusi Þór.

Menntun og störf: Ég er með B.ed. gráðu í grunnskólakennarafræði og meistaragráðu í kennslufræði. Ég starfa við Grunnskóla Vestmannaeyja sem umsjónarkennari í 7. bekk en ég hef unnið í skólasamfélaginu síðan árið 2006.

Fyrri afskipti af stjórnmálum: Ég hef ekki tekið beinan þátt í stjórnmálastarfi en hef ávallt haft mikinn áhuga á stjórnmálum og fylgst vel með umræðu og þróun samfélagsmála.

Af hverju Eyjalistinn? Eyjalistinn samanstendur af fólki sem ber hag allra Vestmannaeyinga fyrir brjósti og ég tel mikilvægt að við getum sameinast um þau verkefni sem fyrir liggja. Við einsetjum okkur að vinna þar að heilindum og með hag allra að leiðarljósi. Við ætlum að standa vörð um hagsmuni allra Eyjamanna og tryggja að rödd allra heyrist og það skiptir mig máli að við í Eyjalistanum stöndum fyrir réttlátu og sterku samfélagi.

Brýnustu verkefni: Að sjálfsögðu koma samgöngur fyrst upp í hugann. Sérstaklega nú eftir erfiðan vetur í því tilliti. Það er ljóst að Landeyjahöfn er alls ekki fullgerð. Vonandi er hægt að bæta hafnarskilyrði þar, þannig að höfnin verði fær til siglinga langstærstan hluta ársins. Einhverjar takmarkanir munu ávallt verða þar, eins og við á um samgöngur víða á landsbyggðinni. Við Vestmannaeyingar bíðum nú eftir mikilvægum tillögum til úrbóta. Fagna ber vinnu við hugsanlega gangnagerð milli lands og Eyja. Vonandi skilar sú vinna árangri og eykur bjartsýni. Það er hins vegar framtíðarsinfónía, sem hljómar vel. Mín skoðun er sú að margt gott hafi átt sér stað í bænum okkar undanfarin ár. Ýmislegt má þó gera betur. Það er brýnt verkefni næstu bæjarstjórnar að gera stórátak í malbikun og gatnagerð. Skipulagsmálin hafa mér einnig ávallt verið mér hugleikin. Þar þurfum við virkilega að vanda til verka. Miðbærinn er mér kannski efstur í huga. Ýmislegt hefur þar verið vel gert, annað síður. Ég er mjög spennt fyrir því að hreinsa burt hraunið austan neðsta hluta Kirkjuvegar og stækka þannig miðbæinn. Svæðið við Löngulág (malarvöllinn) er mjög spennandi skipulagssvæði og gaman að sjá svona skipulag unnið frá grunni.

Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á: Ég persónulega brenn fyrir skólamálin. Þar á ég að sjálfsögðu við allt skólakerfið. Allt frá leikskóla til framhaldsskóla. Íþróttastarf er hér með miklum blóma, annars konar félagsstarf fyrir börn og unglinga hefur aðeins setið á hakanum og þarf að efla mikið meira.

Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja: Sem það öfluga samfélag sem við höfum ávallt verið. Framsækin og traust og hér verði áfram gott að búa.

Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Eyjalistans: Ég tel að ég hafi margt mikilvægt fram að færa sem fulltrúi Eyjalistans, sérstaklega þegar kemur að málefnum barna og ungmenna sem ég brenn fyrir. Ég vil leggja áherslu á að við séum óhrædd við að horfast í augu við það sem má gera betur í skólastarfi og þjónustu við börn og nálgumst þau verkefni af ábyrgð og metnaði. Mér finnst lykilatriði að skapa umhverfi þar sem öllum börnum líður vel, fá að njóta sín á eigin forsendum og hafa raunveruleg tækifæri til að blómstra. Þar skiptir máli að hlusta á raddir barna og foreldra og byggja upp þjónustu sem styður við velferð, öryggi og jákvæða framtíðarsýn. Mér finnst einnig mikilvægt að við einbeitum okkur að því að bæta enn frekar móttöku og stuðning fyrir börn af erlendum uppruna. Hér í samfélaginu býr fjölbreyttur hópur fólks sem er afar mikilvægur fyrir atvinnulífið og framtíðina okkar og við þurfum að tryggja þau börn fái góðan grunn, tilheyri samfélaginu og hafi sömu tækifæri og önnur börn.

Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Ég er svo heppin að stærstur hluti nánustu fjölskyldu minnar hefur búið hér mjög lengi. Þó að það skipti ekki höfuðmáli eru ættir mínar hér í Eyjum rótgrónar og margt af þessu fólki hefur tekið mikinn þátt í bæjarlífinu, hvert á sinn hátt. Ég tel mig heppin að eiga svona mikla tengingu við stóran hluta bæjarbúa. Ég tel mig góðan fulltrúa allra bæjarbúa og mun, ef ég nýt trausts kosningunum í maí, vinna mín störf af festu og trúnaði við alla Vestmannaeyinga.

Nýjustu fréttir

Dýpið minnkaði um meter í síðustu brælu
Opinn borgarafundur í Eyjum
Spurt og svarað: Jessý Friðbjarnardóttir frá Eyjalistanum
Bilun í Herjólfi – sérfræðingur kallaður til frá Noregi
Landfylling við Eiði: Samið við Þjótanda um fyrstu áfanga
Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokknum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.