Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Sanddæluskipið Álfsnes á leið til Eyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Dýpkunarskipið Álfsnesið hefur tímabundið þurft að hætta störfum við Landeyjahöfn vegna veðurs. Þetta kemur fram í nýjum upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar.

„Álfsnesið þurfti frá að hverfa vegna veðurs en mun hefja dýpkun að nýju á fimmtudag, svo framarlega sem veðurspár ganga eftir,“ segir Pétur.

Óstöðugar aðstæður á svæðinu hafa áfram áhrif á dýpkunarframkvæmdir, en eins og áður hefur komið fram eru dýpkunaraðstæður mjög háðar bæði ölduhæð og sjávarstöðu. Vonir standa til að hægt verði að nýta næstu daga til áframhaldandi dýpkunar ef veður leyfir.

Sjá einnig: Dýpið minnkaði um meter í síðustu brælu

Nýjustu fréttir

Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.