Kosningabaráttan fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er farin af stað af fullum krafti og fram undan er líflegt kosningaferðalag á vegum Morgunblaðsins og mbl.is. Að sögn Ásthildar Hannesdóttur, verkefnastjóra í myndskeiðaframleiðslu Morgunblaðsins er markmiðið skýrt: að færa umræðuna nær fólkinu.
„Við höfum nú hrundið af stað kosningaferðalagi um landið þar sem aðeins um fimm vikur eru til kosninga. Okkur finnst mikilvægt að skapa vettvang þar sem íbúar geta kynnt sér málin og tekið þátt í umræðunni,“ segir Ásthildur.

Fyrsti viðkomustaðurinn er Vestmannaeyjar, þar sem haldinn verður opinn borgarafundur í Höllinni á morgun, miðvikudag. „Fundurinn hefst klukkan 20:00 en við opnum húsið klukkan 19:30. Það verður líka hægt að versla sér léttar veitingar á barnum, þannig að það er tilvalið að mæta tímanlega og eiga notalega stund áður en dagskráin hefst,“ útskýrir hún.
Á fundinum fá íbúar tækifæri til að kynnast framboðunum af fyrstu hendi. Oddvitar og bæjarstjóraefni þriggja framboða munu stíga á svið, kynna sig, fara yfir helstu áherslumál og gera grein fyrir stefnu sinni.
„Þetta er einstakt tækifæri fyrir bæjarbúa til að fá góða yfirsýn yfir það sem er í boði í komandi kosningum,“ segir Ásthildur og bætir við að umræðunum verði stýrt af reyndum blaðamönnum, þeim Andrési Magnússyni og Stefáni Einari Stefánssyni.
Hún leggur áherslu á að fundurinn snúist ekki aðeins um framboðin sjálf heldur líka þátttöku almennings. „Við viljum að þetta sé lifandi vettvangur þar sem fólk getur spurt spurninga og tekið virkan þátt í umræðum um málefni sem skipta samfélagið máli.“
Að lokum vill Ásthildur hvetja alla bæjarbúa til að mæta og taka þátt. Þetta er mikilvægt tækifæri til að hafa áhrif á umræðuna og framtíð bæjarins.“