Kröftug suðaustan-alda sem gekk yfir dagana 6.–8. apríl hefur haft veruleg áhrif á aðstæður í Landeyjahöfn. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, hefur dýpi við höfnina minnkað um heilan metra og sandur safnast upp framan við garðana.
„Eftir þessa öldu minnkaði dýpið úr um -3,0 metrum niður í -2,0 metra og mikill sandur safnaðist fyrir utan hafnarmynnið,“ segir Pétur í samtali við Eyjafréttir.
Aðstæður til dýpkunar eru nú afar krefjandi. Til þess að hægt sé að vinna þarf sjólag að vera mjög hagstætt.
„Til viðmiðunar þarf aldan að vera undir 1,5 metra ölduhæð og öldulengd undir 70 metrum, auk þess sem vatnsdýpi þarf að vera um 5 metrar,“ útskýrir Pétur. Þetta þýðir í reynd að dýpkunarframkvæmdir eru aðeins mögulegar á háflóði og þegar aldan er lág.
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður bendir langtímaspá til þess að einhverjir dýpkunargluggar opnist á næstu dögum.
„Það eru ákveðin tækifæri fram undan, en þó ekki samfelldur gluggi þar sem aldan dettur almennilega niður,“ segir Pétur.
Dýpkunarskipið Álfsnesið hóf störf á rifinu við höfnina í morgun og er markmiðið að bæta aðstæður eins og kostur er.
„Skipið er nú að vinna á rifinu og mun dýpka það niður í um -6,0 metra. Þá verður einnig reynt að nýta flóð til að vinna í hafnarmynninu þegar aðstæður leyfa,“ segir Pétur.
Nýjustu dýptarmælingar frá í fyrradag staðfesta stöðuna, þar sem grynningar hafa myndast hratt við hafnarmynnið og gera siglingar erfiðari en áður.
