Jakob Frímann Magnússon mun koma fram í Alþýðuhúsinu laugardaginn 25. apríl nk. Hann mun þar ásamt sérvöldum leynigestum sem ástunda Reykingar, Taka til við að tvista , Horfa í roða fortíðar, nútíðar og framtíðar, hitta fyrir Jack Magnet, Hveitibjörn, Frímann flugkappa, Jobba Maggadon og fleiri kúnstuga karaktera ásamt því að trúa okkur fyrir áður óheyrðum skandalasögum úr undirheimunum.
Þetta verður kósýkvöld í Alþýðuhúsinu laugardaginn 25. apríl með annáluðum Stuðmanni sem kann að leiða óborganlegt spil, spaug og spjall….og fleiri gestir á svið eru staðfestir.
Sérstök forsala hefst í dag 16. apríl kl 10:00, á midix.is fyrir aukakrónuhafa og alla þá sem hafa keypt miða á Hljómey frá upphafi, þar sem gefinn er 1.000 króna afslátt af miðaverði.
Almenn miðasala hefst svo kl. 10:00 þann 17. apríl.
Almennt miðaverð aðeins 8.990 – takmarkaður fjöldi miða í boði, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.