Krefjandi umræða styrkir okkur
Trausti Hjaltason skipar annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi bæjarstjórnarkosningum.
Trausti: Í stórum og öflugum flokki er eðlilegt að skoðanir séu fjölbreyttar. Umræður geta verið krefjandi, en þær gera okkur betri. Þegar við hlustum, ræðum af heilindum og vinnum saman, náum við lengra.

Ég er þakklátur fyrir samtölin og þann hlýhug sem ég hef fundið síðustu vikur. Að lenda í öðru sæti í prófkjöri þar sem fjórtán flottir einstaklingar tóku þátt er eitthvað sem ég er stoltur og ánægður með, en fyrst og fremst minnir það mig á hversu margir eru reiðubúnir til að leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið okkar.

Í pólitík mætast ólíkar skoðanir, það er styrkur. Við gerum öll okkar besta, lærum af reynslunni og höldum áfram að vaxa. Virðing fyrir sjónarmiðum annarra er grunnurinn að árangri.

Í stórum og öflugum flokki er eðlilegt að skoðanir séu fjölbreyttar. Umræður geta verið krefjandi, en þær gera okkur betri. Þegar við hlustum, ræðum af heilindum og vinnum saman, náum við lengra.

Það sem er skemmtilegast og gefur manni mest er að skapa vettvang þar sem allir þora að tjá sig og finna að á þá er hlustað. Þar verða til hugmyndir, lausnir og samhugur sem skilar raunverulegum árangri. Hér dettur mér í hug fundir/samtöl líkt og málefnastarfsfundurinn sem var um helgina í Ásgarði og landsfundur Sjálfstæðisflokksins sem er einstakur viðburður.

Til ykkar sem eruð að stíga fyrstu skrefin í stjórnmálastarfi verið óhrædd að spyrja. Pólitík snýst um fólk, að vinna saman, læra hvert af öðru og byggja upp sterkara samfélag.

Ég hlakka til að halda áfram samtalinu við ykkur og vinna með ykkur að því að gera samfélagið okkar enn betra, það skiptir mestu máli.

Af Fésbókarsíðu Trausta.

Nýjustu fréttir

Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Samgöngur – ítrekuð áskorun til þeirra sem ráða
Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Boltinn farinn að rúlla – og kosningabaráttan líka
Spurt og svarað: Rannveig frá Sjálfstæðisflokknum
Fólkið okkar og framtíðin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.