Bilun í Álfsnesinu tefur dýpkun
Sanddæluskipið Álfsnes fyrir utan Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bilun kom upp í dýpkunarskipinu Álfsnesinu í morgun sem hefur áhrif á áframhaldandi vinnu við Landeyjahöfn. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar.

„Tjakkur í Álfsnesinu sem stýrir einum af átta losunarhlerum skipsins brotnaði í morgun,“ segir Pétur.

Til að hægt sé að gera við bilunina þarf aðstoð kafara. „Það þarf að losa hlerann með kafara og síðan verður hann hífður upp og festur,“ segir hann.

Gert er ráð fyrir að viðgerðin taki nokkrar klukkustundir. „Reiknað er með að viðgerðin taki nokkra klukkutíma eða til klukkan 16 í dag,“ segir Pétur.

Nýjustu fréttir

Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur
Sundlaugin lokuð vegna viðhalds – útisvæðið áfram opið
Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.